Óþolandi að konur séu ennþá lægra settar

Berglind Rögnvaldsdóttir ljósmyndari sigraði keppnina.
Berglind Rögnvaldsdóttir ljósmyndari sigraði keppnina.

Ljósmyndarinn Berglind Rögnvaldsdóttir sigraði í samkeppni sem haldin var á vegum fyrirtækisins Paper Collective og EPAL. Hún fékk 200.000 krónur í verðlaun en Berglind hefur verið búsett í Noregi síðustu sjö ár. 

Eftir útskrift frá Bilder Nordic school of Photography árið 2018 hefur Berglind tekið þátt í stórum listahátiðum í Noregi; Collective Fashion Art, Fushion Oslo og Nordic Light Festival. Berglind hefur á sínum ferli mikið unnið með verk tengd konum og hvernig samfélagið kyngerir og hlutgerir þær frá unga aldri. Verk hennar hafa ákveðið kvenlegt yfirbragð, og feminíska rödd. Einnig notar hún náttúruna sem myndlíkingu til að mæta kynjapólitík samtímans.

„Verkin sem ég vann fyrir Epal og Paper Collective keppnina eiga það sameiginlegt að snúa að hlýnun jarðar og hlutgervingu kvenkyns líkamanns. Innblásturinn kom frá íslensku náttúrunni og kommentakerfinu á samfélagsmiðlum,“ segir Berglind og bætir við: 

„Við mannfólkið erum að eyðileggja jörðina, sem við oftar en ekki köllum „móðir náttúru“ og tölum um í kvenkyni. Samlíking sem í nútíma vestrænum heimi á rætur sínar að rekja í okkar kerfisbundna og inngróna feðraveldi. Þetta hefur bæði kynferðislega og kúgandi tengingu, ýtir undir áframhaldandi umhverfiseyðingu og nauðgunarmenningu og má rökræða að sé einkar lýsandi fyrir samband samfélags okkar við annars vegar náttúruna og hinsvegar kvenkyns líkamann,“ segir hún en í verkum sínum er hún einnig að hugsa um stöðu konunnar. 

„Þetta hefur sömuleiðis sterka tengingu við þá hugmynd að konur séu enn þann dag í dag lægra settar“ og eitthvað sem eigi að leggja undir sig, rétt eins og náttúran sjálf sem er ávallt gengisfelld og látin víkja fyrir óþrjótandi frekju mannkynsins með tilheyrandi óhugnalegum afleiðingum sem við stöndum frammi fyrir í dag.“

Sýningin á verkunum opnar í Epal Gallerí á Laugavegi í dag og stendur sýningin yfir til 2. september.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál