Marmarinn gefur eldhúsinu gamaldags blæ

Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari býr í fallegu bárujárnshúsi í miðbænum.
Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari býr í fallegu bárujárnshúsi í miðbænum. mbl.is/Árni Sæberg

Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari býr í fallegu bárujárnshúsi í miðbænum ásamt eiginmanni sínum Viðari Eggertssyni. Eitt það fyrsta sem þeir gerðu þegar þeir festu kaup á húsinu var að breyta eldhúsinu. 

Húsið var byggt árið 1901 og er bárujárnsklætt timburhús byggt á steingrunni. Húsið er bjart og hlýlegt með litlum garði, frábærlega gott hús að búa í. Við höfum verið hér í átta ár en vorum búnir að hafa augastað á húsinu mun lengur,“ segir Sveinn um húsið.

„Um leið og við fengum húsið afhent og áður en við fluttum inn fórum við í framkvæmdir, settum inn nýtt eldhús og breyttum uppsetningunni. Við fengum dyggilega aðstoð frá vinkonu okkar Guðrúnu Margréti Ólafsdóttur innhússarkitekt. Við létum smíða eldhúsið í U en fyrra eldhúsið var lína eftir endaveggnum og nýttist rýmið að okkar mati alls ekki eins vel þannig. Við vildum einnig fá látlaust, hlýlegt eldhús sem passaði inn í þetta gamla hús.“

Það sem heppnaðist einna best við eldhúsið er falleg marmaraborðplata …
Það sem heppnaðist einna best við eldhúsið er falleg marmaraborðplata sem er í gamaldags stíl. mbl.is/Árni Sæberg

Listaverk úr bjórdósum

Þeir Sveinn og Viðar vildu heimilislegt eldhús með góðri vinnuaðstöðu. Það sem heppnaðist einna best við eldhúsið er falleg marmaraborðplata sem er í gamaldags stíl.

„Við fengum okkur marmara á borðplötuna sem er að sjálfsögðu sérsmíðuð. Hún er ein heil plata en sú hlið sem liggur að veggnum og bak við vaskinn er með rúnnuðum kanti sem nær aðeins upp á vegg. Þetta gerir það að verkum að það kemur gamaldags blær yfir marmarann og hann lítur út fyrir að hafa verið hérna eins lengi og húsið. Einnig er framkanturinn rúnnaður og með gamaldags munstri, sem undirstrikar það sem áður kom fram um að hann smellpassi inn í eldhúsið í gömlu húsi af þessari gerð.“

Stórt og áberandi listaverk fær að njóta sín í eldhúsinu.

„Uppáhaldslistaverkið í borðstofunni er textílverk, búið til úr endurunnum áldósum en lítur út fyrir að grasflötur og alveg ómögulegt að sjá að séu áldósir – bjórdósir að mestu. Verkið er eftir listamanninn Ingu Huld Tryggvadóttur. En uppáhaldsnytjahluturinn í eldhúsinu er án efa ítalska Rancilio-kaffivélin mín.

Ljósið keypt í Amsterdam fyrir 20 árum

Ég kaupi mér yfirleitt hluti sem ég vil eiga til lengri tíma, en auðvitað er stundum flókið við flutninga að allt nýtist aftur eða fari vel á nýjum stað, þannig að auðvitað hef ég keypt einhverja hluti sérstaklega inn í þetta hús sem ég bý í núna. Smekkur minn hefur lítið breyst en þó hefur einhver smá þróun átt sér stað. En hlutir sem ég á lengi eru mér oftast meira virði og ég er ekki að endurnýja bara til að endurnýja,“ segir Sveinn.

„Yfir borðstofuborðinu okkar hangir ljós sem við keyptum fyrir 20 árum í Amsterdam og við lögðum mikið á okkur að taka það með okkur í fluginu heim. Hönnunin er mjög einföld og stenst að mínu viti fyllilega alla tískustrauma og sveiflur og ég er enn þá jafnánægður með það.“

Hvað gerir borðstofu að góðri borðstofu?

„Eins og með flestar vistarverur þá er aðalatriðið að fólki líði vel í rýminu en það sem gerir borðstofu að góðri borðstofu er auðvitað góður félagsskapur að njóta góðs matar. Annars er svo sem ekki mikið um matarboð hjá mér, ég fæ góða útrás fyrir sköpunarþörfina og að dekra við fólk í vinnu en er með litla veisluþjónustu, svona sem aukabúskap. Þar tek ég aðallega að mér að elda í veislum fyrir litla hópa, í matarboðum í heimahúsum eða til dæmis sendiráðum og þessháttar.“

Hvað finnst þér besti kosturinn við hvernig eldhúsið tengist borðstofu og stofu?

„Eins og það er hjá okkur er borðstofan inni í eldhúsi og er því einskonar eldhúsborð líka en við erum með frekar stórt borð sem er eiginlega miðja heimilisins og það er mikið notað. Við sitjum mikið við það, fáum okkur morgunkaffi, föndrum, vinnum, hlustum á tónlist og annað þvíumlíkt. Þegar tekið er á móti gestum er það tilhneiging oftar en ekki að borðstofuborðið sé notað frekar en stofan.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál