Heiðar Austmann og Kolfinna selja í Kópavogi

Heiðar Austmann og Kolfinna Guðlaugsdóttir hafa sett íbúð sína í …
Heiðar Austmann og Kolfinna Guðlaugsdóttir hafa sett íbúð sína í Kópavogi á sölu. mbl.is/Ágúst Óliver

Heiðar Austmann og Kolfinna Guðlaugsdóttir hafa sett fallega íbúð sína við Tröllakór í Kópavogi á sölu. Íbúðin er skráð 139 fm að stærð og er á fjórðu hæð í fallegu fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2007. 

Heiðar er útvarpsstjarna á K100 og Kolfinna er bókari og naglafræðingur, en þau hafa gert heimilið sitt afar notalegt.

Í íbúðinni er rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum, en þaðan er útgengt á suðursvalir með flottu útsýni yfir hverfið. Frá stofu er gengið inn í samliggjandi eldhús og borðstofu í gegnum afar fallegt bogadregið op. 

Eldhúsið er flísalagt með viðarinnréttingu og er nóg af skápaplássi. Borðstofan er björt og rúmgóð, en þar má sjá fallegan skenk og hinn klassíska Kartell lampa sem gefur rýminu skemmtilegan svip. 

Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, þar af eitt rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og tvö barnaherbergi. 

Af fasteignavef mbl.is: Tröllakór 9-11

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál