Helga Ólafsdóttir er nýr stjórnandi HönnunarMars

Helga Ólafsdóttir er nýr stjórnandi HönnunarMars.
Helga Ólafsdóttir er nýr stjórnandi HönnunarMars.

Nýr stjórnandi HönnunarMars er Helga Ólafsdóttir og tekur hún til starfa 1. desember næstkomandi. HönnunarMars er ein af sex borgarhátíðum Reykjavíkur og fer fram í fimmtánda sinn dagana 3. - 7. maí 2023.

Helga er með BA gráðu í fatahönnun og vöruþróun frá Hellerup Textile College í Kaupmannahöfn og fatahönnun frá Kent Institute of Art and Design á Englandi. Hún er með víðtæka reynslu þegar kemur að stjórnun, rekstri og þróun skapandi verkefna, nú síðast fyrir fyrirtæki á borð við Rammagerðina, 66°Norður, Geysi og BestSeller á Íslandi.

Helga stofnaði árið 2008 barnafatamerkið Igló+Indí og var framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi til ársins 2019. Auk þess hefur hún starfað sem yfirhönnuður hjá Ilse Jacobsen, vöruþróunarstjóri hjá Nikita og hönnuður hjá All Saints á Englandi.

„Ég er full tilhlökkunar að taka við sem stjórnandi HönnunarMars og hef einlægan metnað og ástríðu fyrir því að íslensk hönnun haldi áfram að vaxa og skipa enn stærri sess í okkar menningu og atvinnulífi. Allt frá fyrstu hátíðinni 2009 hef ég fylgst með HönnunarMars vaxa og dafna bæði sem þátttakandi og gestur. HönnunarMars er einn af lykilþáttum sem við Íslendingar getum nýtt til að styrkja eigin verðmætasköpun, stuðla að betra samfélagi og færa hönnun enn sterkar inn í okkar daglega líf. Ég hlakka til að vinna með frábæru teymi og samstarfsaðilum að því að byggja upp HönnunarMars til framtíðar, nýta þann góða grunn sem nú þegar hefur verið skapaður og efla enn frekar þá mögnuðu krafta sem búa í íslenskum hönnuðum,“ segir Helga Ólafsdóttir, nýr stjórnandi HönnunarMars

HönnunarMars hefur farið fram árlega frá árinu 2009 þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast fjölbreytileika hönnunar og arkitektúrs og mikilvægi greinanna í nýsköpun, atvinnulífi og í þróun samfélagssins. Hátíðin leiðir saman sýnendur og gesti, boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hún er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið. HönnunarMars er skipulagður af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og er eitt helsta kynningarverkefni íslenskrar hönnunar og arkitektúrs innanlands sem og á alþjóðlegum vettvangi.

„Það er frábært að fá Helgu til liðs við HönnunarMars. Hún hefur mikla og verðmæta reynslu sem hönnuður, listrænn stjórnandi, frumkvöðull og framkvæmdastjóri hönnunarfyrirtækis með rekstur á Íslandi og erlendis. HönnunarMars er stór hátíð sem tengir á milli ólíkra greina og faghópa, þar birtast verkefni einstaklinga, hópa, frumkvöðla, stór og smá fyrirtæki og stofnanir sem öll snúast um hönnun með einum eða öðrum hætti. Við hlökkum til að fá Helgu til liðs við öflugt teymi HönnunarMars,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál