Hjálmar flytur loksins að heiman

Ljósbrá Logadóttir og Hjálmar Örn Jóhannsson.
Ljósbrá Logadóttir og Hjálmar Örn Jóhannsson.

Hjálmar Örn Jóhannsson, skemmtikraftur og hlaðvarpsstjarna í Hæ hæ, mun bráðlega yfirgefa foreldrahús. Á dögunum festi hann og Ljósbrá Logadóttir unnusta hans kaup á 110 fm íbúð í nýju húsi við Hallgerðargötu í Reykjavík. 

Parið hnaut um hvort annað fyrir níu árum og eiga saman tvö börn en Hjálmar átti tvö börn í fyrra sambandi. Fjölskyldan hefur búið á neðri hæðinni hjá foreldrum Hjálmars á æskuheimili hans í Selásnum. Það verða líklega töluverð viðbrigði fyrir Hjálmar að yfirgefa foreldrahús en það mun örugglega fara vel um þau á nýjum stað. 

Smartland óskar Hjálmari og Ljósbrá til hamingju með íbúðina! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál