Hönnunarsjóður hækkar um 30 milljónir

Stækkun sjóðsins er liður í áherslu menningar- og viðskiptaráðherra Lilju …
Stækkun sjóðsins er liður í áherslu menningar- og viðskiptaráðherra Lilju D. Alfreðsdóttur á að efla þróun á sviði hönnunar og arkitektúrs með það að mark­miði að auka verðmæta­sköp­un og lífs­gæði með mark­viss­um hætti. mbl.is/Arnþór

Framlag til Hönnunarsjóðs hefur verið hækkað um 30 milljónir og stækkar því sjóðurinn úr 50 milljónum í 80 milljónir króna 2023. Stækkun sjóðsins er liður í áherslu menningar- og viðskiptaráðherra Lilju D. Alfreðsdóttur á að efla þróun á sviði hönnunar og arkitektúrs með það að mark­miði að auka verðmæta­sköp­un og lífs­gæði með mark­viss­um hætti.

Aukið framlag til sjóðsins er líka liður í áherslum nýrrar stefnu stjórnvalda í málefnum hönnunar og arkitektúrs, sem verður kynnt á næstu vikum.

Umtalsverð aukning hefur verið í nýsköpun og þróun á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi undanfarin ár og er hækkun sjóðsins veigamikið skref í að ýta undir og hraða þeirri þróun.

Breytingar taka gildi þegar í stað

Í kjölfarið á hækkuninni hefur stjórn samþykkt að hámarksupphæð styrkja verður 10 milljónir króna og að ferðastyrkir hækki úr 100 þúsundum í 150 þúsund.

Breytingar taka gildi þegar í stað en opið er fyrir umsóknir í fyrri úthlutun ársins 2023. Umsóknarfrestur er 7. febrúar og úthlutun áætluð 9. mars næstkomandi.

„Það eru mikil gleðitíðindi að stjórnvöld hafi ákveðið að auka framlag til Hönnunarsjóðs enda mikilvægt skref að stjórnvöld leggi aukna áherslu á nýsköpun og þróun á sviði hönnunar og arkitektúrs. Samfélag okkar er að breytast mjög hratt sem kallar á nýjar lausnir og skapandi nálgun með aukin lífsgæði og sjálfbærni að leiðarljósi. Hönnunarsjóður er megin tæki til að hraða og styðja við þessa þróun,“ segir Guðrún Inga Ingólfsdóttir stjórnarformaður Hönnunarsjóðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál