Hjónin María Rut Kristinsdóttir kynningarstýra UN Women og Ingileif Friðriksdóttir framkvæmdastjóri hjá Ketchup Creative festu kaup á 146,8 fm parhúsi í 101 á dögunum. Húsið er afar fallegt og fjölskylduvænt. Það var byggt 1934 og er bárujárnsklætt timburhús.
Hjónin tilkynntu það á haustdögum að von væri á öðru barni barni en þær eiga tvo syni fyrir.
Fjölskyldan bjó áður á Öldugranda og komst það í fréttir þegar sú íbúð fór á sölu.
Smartland óskar þeim til hamingju með nýja húsið!