Fyrrverandi ráðherra byggir blokk í 101

Þóra Margrét Þorgeirsdóttir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Björt Ólafsdóttir.
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Björt Ólafsdóttir. Ljósmynd/Samsett

Björt Ólafsdóttir fyrrverandi ráðherra Bjartrar framtíðar hefur ekki setið aðgerðarlaus síðan hún hætti á þingi. Nú ætlar hún að byggja blokk við Frakkastíg.

Björt, sem var umhverfisráðherra, setti af stað fyrirtækið IÐU ásamt Brynhildi S. Björnsdóttur. Björt er framkvæmdastjóri félagsins en Brynhildur er viðskipta-og þróunarstjóri fyrirtækisins.

„Við í IÐU gengum á dögunum frá hlutafjáraukningu og fengum með okkur öfluga fjárfesta til að hleypa af stokkunum því áhugaverða, en auðvitað krefjandi verkefni, að hanna og byggja fjölbýlishús á Frakkastíg 1 sem unnið verður eftir aðferðum hringrásarhagkerfisins,“ segir Björt á Facebook-síðu sinni. 

Hún segir að mannvirkjageirinn á heimsvísu sé ábyrgur fyrir 40% losunar og það velti mikið á að breyta því. Hún fullyrðir að þeirra hús muni losa 50% minna en viðmiðunarhús. 

„Eitt skref í því er að huga að byggingarefnunum og vera ekki sífellt að henda dýrmætum auðlindum, heldur upphanna og skapa nýtt. Samhliða uppbyggingunni á Frakkastíg erum við í IÐU að vinna að einmitt því fyrir geirann í heild sinni og fengum fyrir það styrk úr ASKI Mannvirkjasjóði á dögunum. Þetta verkefni og þessi vinna síðastliðin tvö á hjá okkur hefur verið skemmtileg- og auðvitað líka mjög krefjandi,“ segir Björt. 

Danska arkitektastofan Lendager með Arnhildi Pálmadóttur arkitekt innanborðs teiknaði húsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál