Friðað einbýlishús selt á 355 milljónir

Bergstaðastræti 70 er fallega hannað.
Bergstaðastræti 70 er fallega hannað. mbl.is/Kristinn Magnússon

Við Bergstaðastræti 70 stendur glæsilegt 343,5 fm einbýlishús sem teiknað var af Skarphéðni Jóhannssyni arkitekt. Hjalti Geir Kristjánsson hannaði húsið að innan en húsið var í eigu hans og eiginkonu hans, Sigríðar Th. Erlendsdóttur sagnfræðings. Þau eru bæði látin. 

Hjalti lauk versl­un­ar­prófi frá VÍ 1944 og sveins­prófi í hús­gagna­smíði frá Iðnskól­an­um 1948. Hélt þá til Sviss og lauk námi í hús­gagna­teikn­un frá Kunst­gewer­beschule der Stadt Zürich 1950, fór í fram­halds­nám í hús­gagna­hönn­un í Svíþjóð og versl­un­ar­grein­um við Col­umb­ia-há­skóla í New York.

Hjalti var fram­kvæmda­stjóri Kristjáns Sig­geirs­son­ar hf. frá 1952, ásamt því að hanna þau hús­gögn sem fyr­ir­tækið fram­leiddi, og var stjórn­ar­formaður GKS 1990.

Hann var stofn­andi FHI, Fé­lags hús­gagna- og inn­an­húss­arki­tekta, árið 1953 og formaður til 1962. Árið 2019 var Hjalti gerður að heiðurs­fé­laga FHI. Hann sat í stjórn Versl­un­ar­ráðs Íslands 1969-1982, þar af formaður frá 1978. Hjalti var stjórn­ar­formaður Al­mennra trygg­inga 1974-1989 og vara­formaður stjórn­ar Sjóvár-Al­mennra frá 1989. Hann sat í stjórn Fé­lags ís­lenskra iðnrek­enda 1975-1979, í stjórn Útflutn­ings­miðstöðvar iðnaðar­ins 1975-1979. Þá sat Hjalti í stjórn Slipp­fé­lags­ins og Ham­ars hf. 1976-1986, stjórn Spari­sjóðs Reykja­vík­ur og ná­grenn­is frá 1978-2003, stjórn Eim­skipa­fé­lags­ins 1981-2000, stjórn Stálsmiðjunn­ar 1986-1990. Hjalti var ræðismaður Sviss á Íslandi 1987-1997, var sæmd­ur ridd­ara­krossi fálka­orðunn­ar 1986 og finnsku Ljónsorðunni 1982.

Hjalti Geir var brautryðjandi á sviði ís­lensks iðnaðar og hönn­un­ar. Hann studdi inn­göng­una í EFTA 1970 en þá gátu ís­lensk­ir hönnuðir beint sjón­um sín­um utan, sem hleypti lífi í starf ís­lenskra hús­gagna­arki­tekta og ís­lensk hönn­un varð að sjálf­stæðri at­vinnu­grein ekki síst fyr­ir fram­göngu hans.

10. nóvember 2014 var húsið friðlýst af forsætisráðherra en þá voru liðin 100 ár frá fæðingu Skarphéðins Jóhannssonar arkitekts. Friðlýsingin tekur til ytra borðs hússins. 

6. mars var húsið selt á 355 milljónir. Kaupendur hússins eru Stefanía Sigfúsdóttir arkitekt og Gísli Valur Guðjónsson framkvæmdastjóri Ísafoldar Capital Partners. Hjónin búa í Fossvoginum en árið 2015 fengu þau fegrunarviðurkenningu frá Reykjavíkurborg fyrir vel heppnaðar endurbætur á húsinu sem er við Láland. 

Húsið var friðað að utan 2014.
Húsið var friðað að utan 2014. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál