Ása Steinars selur tvær sjarmerandi eignir í miðbænum

Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar, Leo Alsved, hafa sett …
Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar, Leo Alsved, hafa sett tvær sjarmerandi eignir í Reykjavík á sölu. Samsett mynd

Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar, Leo Alsved, hafa sett tvær íbúðir í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Önnur eignin er heimili fjölskyldunnar á meðan hin hefur verið í útleigu og á Airbnb. 

Ása og Leo hafa verið mikið á flakki um heiminn undanfarin ár, en þau festu kaup á húsi í Svíþjóð á síðasta ári og hafa þar að auki eytt heilmiklum tíma á ferðalagi í húsbíl sem þau gerðu upp.

Sjarmerandi eignir með sérinngangi

Fyrri eignin er heimili fjölskyldunnar við Ránargötu í Reykjavík. Eignin sem um ræðir er á fyrstu hæð í sjarmerandi húsi sem reist var árið 1906. Íbúðin er með sérinngangi og telur 60 fm, en hún státar af tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi. Ásett verð er 59.900.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Ránargata 12a

Íbúðin er í fallegu húsi með góðum bakgarði.
Íbúðin er í fallegu húsi með góðum bakgarði. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Hjónin hafa innréttað heimili sitt á heillandi máta.
Hjónin hafa innréttað heimili sitt á heillandi máta. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Seinni eignin er við Þingholtsstræti í Reykjavík, en hún er á tveimur hæðum með sérinngangi í húsi sem reist var árið 1900. Íbúðin telur alls 72 fm og státar af tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi. Ásett verð er 56.900.000 krónur. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Þingholtsstræti 8

Mikill sjarmi er yfir eigninni við Þingholtsstræti.
Mikill sjarmi er yfir eigninni við Þingholtsstræti. Ljósmynd/Sölumyndir.is
Við húsið er góður garður til vesturs.
Við húsið er góður garður til vesturs. Ljósmynd/Sölumyndir.is

Vildu bæði kaupa gömul hús með sál

Ása greindi frá sölunni á Instagram-síðu sinni. „Endir á tímabili. Við erum að selja heimilið okkar í hjarta Reykjavíkur,“ skrifaði hún við mynd af sér fyrir framan fyrra húsið sem er við Ránargötu.

„Og önnur eign á sölu. Við erum líka að selja aðra íbúð sem við eigum í miðbænum. Við höfum notað hana fyrir Airbnb og leigu. Bæði ég og Leo vildum alltaf gömul hús með sál, og það er það sem við keyptum. Við höfum elskað að eyða tíma hér í miðbænum, nálægt öllu. Við höfum eytt tíma i báðum íbúðunum, en nú er kominn tími á að einhver nýr taki við,“ skrifaði Ása á Instagram.

Ása Steinars sagði frá sölunni á Instagram.
Ása Steinars sagði frá sölunni á Instagram. Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál