Þekktir hönnuðir hanna baðlínu fyrir Epal

Verkefnið samastendur af ýmsum nytjahlutum, bæði fyrir heimilið og einnig …
Verkefnið samastendur af ýmsum nytjahlutum, bæði fyrir heimilið og einnig fyrir heimsóknir á baðstaði. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Margrét Jónsdóttir leirlistakona, Unnur Valdís Kristjánsdóttir hönnuður flothettunnar, Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir grafískur hönnuður og leikkonan Sóley Elíasdóttir sem rekur Sóley Organics sameina krafta sína í nýrri baðlínu Epal sem kallast BAÐ. Línan samanstendur af diskum, glösum og krúsum úr keramiki fyrir baðherbergið en líka af handklæðum, slopp og snyrtitösku. Í línunni eru sápar í föstu og ljótandi formi, baðsalt og kerti sem lykta eins og íslenskt vor og svo sundtaska. 

Margrét Jónsdóttir hannaði keramik-hluti sem henta inn á baðherbergi og …
Margrét Jónsdóttir hannaði keramik-hluti sem henta inn á baðherbergi og Sóley hannaði sápur og baðsölt. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Frumsýnd á HönnunarMars 

Línan var fyrst sýnd á HönnunarMars í ár en er nú tilbúin. 

„Epal hefur verið ötul klappstýra skandinavískrar og íslenskrar hönnunar í áraraðir eða allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1975. Epal Design, sem er systurfélag Epal, einblínir á að styðja við, kynna og framleiða íslenska hönnun. Úrval hluta hafa litið dagsins ljós og má nefna t.d. lundann hans Sigurjóns Pálssonar sem gott dæmi um afsprengi Epal Design,“ segir Sigga Heimis iðnhönnuður sem heldur utan um verkefnið fyrir hönd Epal. 

„Hugmynd um að Epal myndi þróa og hanna vörur til þess að hampa okkar frábæru bað menningu fæddist á hugarflugsfundi snemma árs 2023,“ segir Sigga og nefnir að baðmenning landsmanna sé sérstök. 

Í línunni er eigulegur sloppur.
Í línunni er eigulegur sloppur. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Einstök baðmenning

„Baðmenning okkar er á svo margan hátt einstök og allir Íslendingar tengja við hana. Heita vatnið okkar er mikilvæg náttúruauðlind og í raun ótrúleg hversdagsgæði að hafa aðgengi að henni. Þrátt fyrir þessa einstöku menningu þá fer hún allt að því fram hjá okkur og við tökum henni sem sjálfsögðum hlut. Í dag þegar áreiti, kvíði og álag færist í aukana þá ættum við að leita skjóls í henni og njóta þess að hafa þennan munað þar sem líkami og hugur nær slökun og næringu,“ segir hún. 

Hér má sjá slopp og sundtösku.
Hér má sjá slopp og sundtösku. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Í línunni eru handklæði.
Í línunni eru handklæði. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Línan inniheldur meðal annars handklæði, sloppa, snyrtitöskur, sápur, baðsalt, diska, …
Línan inniheldur meðal annars handklæði, sloppa, snyrtitöskur, sápur, baðsalt, diska, bolla, krúsir og sundtösku. Undirtónninn er íslensk náttúra og var mikil áhersla lögð á að ná fram réttri áferð, litum og gæðum við þróun hlutanna. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda