Mætti bjóða þér að búa í bílastæði?

Hér má sjá hvernig bílakjallarinn lítur út.
Hér má sjá hvernig bílakjallarinn lítur út. Ljósmynd/Remax

Síðustu ár hafa stjórnendur Reykjavíkurborgar gert allt til þess að reyna að láta íbúa landsins ferðast um fótgangandi eða í strætó. Herferðin gegn einkabílnum hefur haft þau áhrif að bílelskandi íbúar þessa lands forðast miðbæ Reykjavíkur því engin bílastæði er að fá.  

Það að eiga bílastæði í miðbæ Reykjavíkur gæti farið að flokkast sem alvöru munaður enda ekki á færi allra að eiga bílastæði sem kostar tæplega tíu milljónir. Eða er heimurinn kannski að breytast? Gæti næsti tískustraumur verið að eiga bifreið og upphitað bílastæði með rafmagni í stað íbúðar? Hver þarf íbúð ef viðkomandi getur búið í bíl sem kúrir í upphituðum bílakjallara? 

Hér er keyrt inn í bílakjallarann.
Hér er keyrt inn í bílakjallarann. Ljósmynd/Remax

Auglýsa stæði til sölu í kjallara

Nú getur þú keypt þér bílastæði í bílakjallara við Smiðjustíg í Reykjavík. Það er Gunnlaugur J. Guðlaugsson fasteignasali á Remax sem er með stæðin til sölu en alls eru þrjú stæði í boði í þessu húsi. Tvö eru jafnstór og eitt þeirra er stærra. 

Um er að ræða sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu við Smiðjustíg 4, 101 Reykjavík.

Innkeyrsludyr inn í stæðið er við Canopy Hilton hótelið sem er við Smiðjustíg. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Smiðjustígur 4

Alls eru þrjú stæði í sama bílakjallara til sölu. Stæðið …
Alls eru þrjú stæði í sama bílakjallara til sölu. Stæðið lengst til vinstri er dýrara, enda aðeins stærra en hin tvö. Ljósmynd/Remax
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda