Hafdís leitar að húsnæði til leigu

Hafdís Björg Kristjánsdóttir leitar að húsnæði til leigu fyrir sig …
Hafdís Björg Kristjánsdóttir leitar að húsnæði til leigu fyrir sig og börn sín fjögur. Ljósmynd/Instagram

Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari leitar að húsnæði til leigu á félagsmiðlum. Hafdís býr í Garðabæ um þessar mundir en hún og Kristján Einar Sigurbjörnsson, Kleini, hættu saman á dögunum eftir tæplega tveggja ára samband. Parið leigði 364 fm einbýli við Löngumýri í Garðabæ sem reist var 1985. Parið flutti inn í haust þegar allt lék í lyndi.

Um mánaðamótin mars/apríl þarf Hafdís nýtt húsnæði fyrir sig og fjögur börn sín. Hafdís vill helst búa í 102 Reykjavík, 105, Reykjavík eða 108 Reykjavík og tekur fram í auglýsingu að dýrahald verði að vera leyft. 

Hafdís sagði frá því í haust að parið hefði flutt í Garðabæ því þau hefðu ekki fundið nægilega stórt húsnæði fyrir sig og sína í Hlíðunum. 

Húsið sem Hafdís býr í var auglýst til sölu 16. apríl 2024 og sett verð er 193.900.000 kr. Húsið er ennþá óselt. 

Smartland óskar Hafdísi góðs gengis og vonar að hún finni íbúð í tæka tíð! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda