Jón Erling og Þórunn keyptu 245 milljóna einbýli

Jón Erling Ragnarsson og Þórunn Dögg Johansen hafa fest kaup …
Jón Erling Ragnarsson og Þórunn Dögg Johansen hafa fest kaup á fallegu einbýlishúsi í Hafnarfirði.

Í byrjun ársins var glæsilegt einbýlishús við Fagraberg í Hafnarfirði auglýst til sölu. Ásett verð var 248.000.000 kr. Nú hefur húsið verið selt.

Jón Erling Ragnarsson, einn af eigendum Mekka Wines & Spirits, og Þórunn Dögg Johansen, einn af eigendum Athygli ráðstefna, festu kaup á einbýlishúsi við Fagraberg í Hafnarfirði á dögunum.

Þau keyptu húsið af Evu Björgu Sigurðardóttur kaupsýslukonu. Um er að ræða 340 fm einbýli sem reist var 1984. Húsið er á tveimur hæðum og hefur verið mikið endurnýjað. Eld­húsið var tekið í gegn árið 2016 og eld­hús­tæki end­ur­nýjuð. Svört granít­plata er á dökk­brúnni inn­rétt­ingu og eru flís­ar á milli efri og neðri skápa. Stof­ur, baðher­bergi og svefn­her­bergi eru máluð í dökk­grá­um lit sem ger­ir eign­ina hlý­lega. Stíll­inn held­ur sér um allt húsið og eru svart­ir, grá­ir og ljós­brún­ir mun­ir notaðir á móti gráu veggj­un­um. Gegn­heilt par­ket er í eld­húsi, stof­um og her­bergj­um og flís­ar á baðher­bergj­um, for­stofu og þvotta­húsi.

Það er því ekki skrýtið að Jón Erling og Þórunn hafi fallið fyrir húsinu en nú er einbýlishús þeirra við Suðurgötu 27 komið á sölu.

Húsið er málað í dökkum sveppalit að utan sem fer …
Húsið er málað í dökkum sveppalit að utan sem fer vel við gráa glugga.
Í húsinu eru dökkar innréttingar og náttúrusteinn.
Í húsinu eru dökkar innréttingar og náttúrusteinn.
Stórir og myndarlegir gluggar prýða húsið.
Stórir og myndarlegir gluggar prýða húsið.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda