Ný Stockholm-lína loksins afhjúpuð

Ný Stockholm-lína Ikea hefur að geyma glerljós sem má fara …
Ný Stockholm-lína Ikea hefur að geyma glerljós sem má fara í uppþvottavél, glerskápa undir sparistell og skáp með rattan-rennihurðum svo eitthvað sé nefnt. Samsett mynd

Västra Trädgårdsgatan 9 í miðbæ Stokkhólms skartaði sínu fegursta þegar splunkuný Stockholm-lína Ikea var kynnt fyrir litlum hópi á dögunum. Til þess að sýna línuna í réttu ljósi og til að auka hughrif viðstaddra var búið að innrétta íbúð á tveimur hæðum við fyrrnefnda götu. Slegið var upp teiti í íbúðinni þar sem hönnuðir línunnar voru samankomnir ásamt stjórnendum Ikea og gestum víða af úr heiminum. 

Árið 1985, eða fyrir 40 árum, frumsýndi Ikea sína fyrstu Stockholm-línu. Síðan þá hefur ný lína litið dagsins ljós nokkrum sinnum og hafa vörurnar þótt eftirsóttar. Biðin eftir nýrri Stocholm-línu hefur tekið á en sjö ár eru síðan síðasta lína kom á markað. Hún innihélt hluti sem þykja móðins á Íslandi og líka víða um heim. 

Glerljósið í línunni vakti mikla athygli þegar línan var forsýnd …
Glerljósið í línunni vakti mikla athygli þegar línan var forsýnd fyrir þröngan hóp á dögunum. Stólarnir og borðið eru líka úr línunni.
Ljós eik er áberandi í línunni.
Ljós eik er áberandi í línunni.

Frísklegt yfirbragð 

Meira er lagt í Stockholm-línuna en gengur og gerist hjá Ikea og eru hlutir í henni örlítið dýrari. Verðið er þó alls ekki óyfirstíganlegt á þessum 90 hönnunarvörum sem frumsýndar verða hérlendis á fimmtudaginn. Ber þar að nefna kubba-sófa sem hægt er að raða saman að vild og koma þeir í nokkrum litum og efnum. Þar eru líka bókahillur í ljósum við og úr dökkum við, lítil sófaborð sem fallegt er að raða saman, glerskápar sem smellpassa bæði undir sparistell en líka fyrir skó og fylgihluti séu þeir hafðir í svefnherbergi. Einn af flottutu hlutum línunnar er stofuskápur með rattan-rennihurðum sem líklegt er að slegist verði um. 

Stór hópur af hönnuðum kom saman til að búa til Stocholm-línuna og fékk hönnuðurinn Karin Gustavsson það verkefni að stýra hönnunarteyminu.

Þessi glerskápur státar af frísklegri hönnun og setur svip á …
Þessi glerskápur státar af frísklegri hönnun og setur svip á heimili.

„Skandínavísk hönnun snýst um sígildan einfaldleika eins og fallega litasamsetningu, náttúrleg hráefni og form. Mér finnst ótrúlega gaman að vinna með mótvægi þar sem eitthvað mjúkt eins og ull er notað sem einhverju glansandi og eins og gleri. Saman skapa hráefnin einstakt og áhugavert útlit,“ segir Karin sem hefur unnið fyrir Ikea í 20 ár en hún er hönnuður að mennt. 

„Framleiðslan var einnig lykilatriði í að finna réttu gæðin en þar sem við höfum lengi verið í góðum samskiptum við framleiðendur gátum við blásið lífi í línu sem ljómar af fallegri hönnun og handverki á verði sem ég er afar stolt af,“ segir hún. 

Hér má sjá skáp með rattan-rennihurðum sem á án efa …
Hér má sjá skáp með rattan-rennihurðum sem á án efa eftir að verða vinsæll hjá landsmönnum.
Græni liturinn er að koma sterkur inn á heimili landsins.
Græni liturinn er að koma sterkur inn á heimili landsins.

Glerljós sem má fara í uppþvottavél

Í línunni er hangandi glerljós sem vakti mikla athygli þegar línan var kynnt í Stokkhólmi. Ljósið er hannað af Nike Karlsson. Hann segir að hönnunarferlið hafi tekið örlítið á. 

„Karin var með ákveðnar hugmyndir fyrir loftljósið sem mér fannst skemmtilegar en ég átti þó erfitt með að sjá það fyrir mér svona í upphafi. Ég ætlaði að nota við eða textíl en að lokum var það gler sem átti vinninginn og smellpassaði við hönnunina,“ segir Nike Karlsson en ljósið er ekki bara hönnunarlegt og smart heldur er það líka nokkuð praktískt því það má tína það af grindinni og setja það í uppþvottavél þegar það er orðið skítugt. 

Hér er skápurinn með rattan-rennihurðunum sýndur í klassísku sænsku umhverfi …
Hér er skápurinn með rattan-rennihurðunum sýndur í klassísku sænsku umhverfi þar sem skrautlistar prýða veggina. Takið eftir lampanum uppi á skápnum, hann er líka úr línunni.
Hér má sjá sófa úr Stockholm-línunni sem er mjúkur og …
Hér má sjá sófa úr Stockholm-línunni sem er mjúkur og þægilegur.

Stórborgarlegt yfirbragð?

„Það mætti ætla að vörulína sem kallastStockholm sé með stórborgarbrag yfir sér. Fyrir þessa línu sóttum við innblástur út fyrir borgarmörkin, í náttúruna og eyjarnar í kring. Við unnum með sænskum birgja til að fá furu í hæsta gæðaflokki. Fólk hugsar oft um furu sem ódýrt hráefni en fegurð gæðafuru er óviðjafnanleg og það má sjá á bæði sófanum og bekknum. Sófinn er sá fyrsti í úrvali okkar án svamps. Hann er úr 100% bómullarblöndu og fylltur með kókóstrefjum og pokagormum. Þegar þú sest í hann heyrir þú í gæðunum,“ segirNike Karlsson. 

Hlutir til að elska um ókomin ár

Í línunni eru ekki bara húsgögn heldur skrautmunir, borðbúnaður og textíll. Þar er til dæmis að finna handunnar gólfmottur sem setja svip á hvert heimili. 

„Hver einasta vara í línunni er sígild og fallegt. Þar er eitthvað sem þú getur átt og elskað um ókomin ár,“ segir Paulin Machado hönnuður og bætir við: 

„Uppáhaldsvörurnar mínar eru motturnar með birkimynstrinu. Það er magnað að vinna með handofið efni og verða vitni að ótrúlegri færni sem hefur gengið á milli kynslóða. Það tekur mörg ár að verða fær vefari en hver motta er gerð af tveimur handverkslistamönnum á nokkrum dögum. Þeir sitja hlið við hlið og vinna með eina hlið mottunnar þar sem þeir vefa í takt. Fólk heldur kannski að það sé einfalt að vefa en sannleikurinn er sá að það krefst mikillar færni. Val á litum, áferð, hversu þétt er togað í hvern þráð, hver ákvörðun hefur áhrif á lokaútkomuna,“ segir Machado. 

Svarti blómavasinn er úr línunni og líka stóllinn sem er …
Svarti blómavasinn er úr línunni og líka stóllinn sem er með ofnu áklæði.
Ljós viður er að koma sterkur inn eins og sést …
Ljós viður er að koma sterkur inn eins og sést hér.
Þessi stofuskápur er úr eikarspóni.
Þessi stofuskápur er úr eikarspóni.
Þessi lampi á án efa eftir að lýsa upp íslenskt …
Þessi lampi á án efa eftir að lýsa upp íslenskt skammdegi síðar á þessu ári.
Hér er lægri útgáfa af skápnum sem er líka spónlagður …
Hér er lægri útgáfa af skápnum sem er líka spónlagður með eik.
Hér má sjá handofna mottu úr Stockholm-línunni.
Hér má sjá handofna mottu úr Stockholm-línunni.
Í línunni eru gylltir bakkar sem eru fallegir undir glös.
Í línunni eru gylltir bakkar sem eru fallegir undir glös.
Mikið var lagt upp úr því að það væri þægilegt …
Mikið var lagt upp úr því að það væri þægilegt að sitja í þessum stól þegar hann var hannaður.
Hér má sjá glerljósin saman en þau koma í tveimur …
Hér má sjá glerljósin saman en þau koma í tveimur útgáfum.
Í línunni er fallegur borðbúnaður sem hentar fyrir hina veisluglöðu.
Í línunni er fallegur borðbúnaður sem hentar fyrir hina veisluglöðu.
Í línunni er töluvert af textílvörum eins og þessum gluggatjöldum …
Í línunni er töluvert af textílvörum eins og þessum gluggatjöldum sem eru ferlega sænsk.
Glerskápurinn vakti athygli þegar línan var kynnt.
Glerskápurinn vakti athygli þegar línan var kynnt.
Þessar bókahillur koma í tveimur viðartegundum, svona dökkar og svo …
Þessar bókahillur koma í tveimur viðartegundum, svona dökkar og svo úr eik.
Það kemur vel út að hafa bókahillurnar tvær saman, hlið …
Það kemur vel út að hafa bókahillurnar tvær saman, hlið við hlið, en þó ekki alveg upp að hvor annarri.
Hér má sjá svarta stóla við eikarborð.
Hér má sjá svarta stóla við eikarborð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda