Mun fasteignaverð hækka?

Tinna Bryde fasteignasali hjá Pálsson fasteignasölu svarar spurningum frá lesendum …
Tinna Bryde fasteignasali hjá Pálsson fasteignasölu svarar spurningum frá lesendum Smartlands. Samsett mynd

Tinna Bryde fasteignasali á Pálsson fasteignasölu svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manneskju sem veltir því fyrir sér hvort hún eigi að kaupa íbúð núna eða bíða með það. 

Sæl.

Nú á ég sparnað inni á bók en velti fyrir mér hvernig er fasteignamarkaðurinn. Mun fasteignaverð hækka? Á ég að bíða eða er gott að kaupa núna?

Kveðja, 

HG

Sæl og takk kærlega fyrir spurninguna.

Þetta er eitthvað sem margir eru að velta fyrir sér þessa dagana.

Nú ríkir ákveðið jafnvægi á fasteignamarkaði, sem þýðir að fasteignir eru að seljast, en ekki á methraða. Það gefur þér svigrúm til að skoða þína stöðu án þess að vera undir miklum þrýstingi.

Vextir hafa verið að lækka undanfarið og spár gera ráð fyrir áframhaldandi lækkunum. Lægri vextir geta leitt til aukinnar eftirspurnar og þar af leiðandi hækkunar á fasteignaverði.

Hvað þýðir þetta fyrir þig?

  • Ef fasteignaverð fer að hækka í takt við vaxtalækkanir, getur verið hagkvæmt að kaupa áður en sú þróun á sér stað.
  • Það er engin trygging fyrir því að verðið verði betra seinna og með jafnvægi á markaði í dag getur þú átt möguleika á hagstæðum viðskiptum.
  • Ef þú ert fjárhagslega tilbúin og finnur eign sem hentar þér, þá gæti þetta verið rétti tíminn.

Fyrsta eignin getur verið frábær fjárfesting sem hjálpar þér að komast í stærri eign síðar. Þess vegna er sniðugt að horfa ekki bara á ástand eignarinnar í dag, heldur líka á möguleikana sem hún hefur. Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera með litlum kostnaði – og þannig auka verðmætið.

Þegar þú skoðar eignir er gott að hafa fermetraverð í huga og bera saman við sambærilegar eignir sem hafa selst nýlega. Þannig færðu betri mynd af því hvað þú ert að fá fyrir peninginn.

Kær kveðja,

Tinna Bryde fasteignasali. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Tinnu spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda