349 milljóna draumahús í Arnarnesi

Tvöfaldur bílskúr fylgir húsinu og risastórt bílaplan.
Tvöfaldur bílskúr fylgir húsinu og risastórt bílaplan.

Við Mávanes í Arnarnesinu er að finna 312 fm einbýli sem reist var 1966. 

Aðalhæð hússins samanstendur af forstofu, rúmgóðri stofu, eldhúsi, þvottahúsi, borðstofu, þremur svefnherbergjum, gestasalerni, baðherbergi með sturtu/baðkari og bílskúr.

Á neðri hæð, sem er með sérinngangi, er stofa, baðherbergi, svefnherbergi, herbergi sem er nýtt sem fataherbergi og geymsla. Við hlið geymslunnar er stórt rými sem nýtt er sem tómstundarherbergi og út frá því er útgrafið pláss sem er nýtt sem geymsla.

Húsið er umkringt fallegum og vel grónum garði, þar sem er gróðurhús og heitur pottur með stillanlegri pergolu. Útisvæðið er flísalagt með grillskála og útiborði, sem gerir það að fullkomnu svæði til útiveru.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Mávanes 18

Gólfsíðir gluggar setja svip á stofuna.
Gólfsíðir gluggar setja svip á stofuna.
Húsið er myndarlegt á alla kanta.
Húsið er myndarlegt á alla kanta.
Borðstofa og eldhús tengjast.
Borðstofa og eldhús tengjast.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda