Böðvar kominn með réttindin

Böðvar Þór Eggertsson er orðinn löggiltur fasteignasali.
Böðvar Þór Eggertsson er orðinn löggiltur fasteignasali. mbl.is/Kristinn Magnússon

Böðvar Þór Eggertsson hætti að klippa hár fyrir um tveimur árum þegar hann lagði skærin á hilluna. Hann er þekktur í íslensku samfélagi sem Böddi á Space en hann rak þá hárgreiðslustofu um langa hríð. Þegar hann lagði skærin á hilluna fór hann í nám til þess að verða löggiltur fasteignasali. 

Nú er Böðvar útskrifaður en í Lögbirtingablaðinu kemur fram að Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hafi gefið út löggildingu til Böðvars Þórs Eggertssonar til þess að vera fasteigna-og skipasali og var leyfið gefið út 14. apríl.

Haustið 2023 birtist viðtal við Böðvar á Smartlandi þar sem hann fór yfir feril sinn, sínar helstu áskoranir, vonir og væntingar. Í viðtalinu sagði hann frá því hvernig líf hans hafi breyst eftir að hann fékk ADHD greiningu. 

„Áður en ég fékk grein­ingu var ég týp­an sem fannst eng­inn vera full­kom­inn nema ég sjálf­ur. Ef það kom upp vanda­mál í sam­band­inu hjá mér þá var það alltaf henni að kenna – ekki mér. Ef það voru vanda­mál í vinn­unni þá var það hinum að kenna – ekki mér. Stærsta breyt­ing­in við það að fá grein­ingu og fá að vita hvernig þetta virkaði var að ég horfði inn á við og áttaði mig á því að ég væri rass­haus­inn. Það sem ég var að kenna hinum um var mér að kenna. Eft­ir að ég fékk grein­ing­una opnuðust augu mín og ég fór að byggja mig upp og nota þetta til að styrkja mig,“ sagði Böðvar í viðtalinu á Smartlandi: 

Fékkstu lyf?

„Nei, ekki strax. Fyrst fór ég í þerapíu til þess að reyna að læra að lifa með ADHD. Þetta var svona 12 spora kerfi. Ég var í af­neit­un að ég væri með ADHD. Þerap­ist­inn vildi ekki að ég færi á lyf fyrr en ég væri bú­inn að horfa inn á við og reyna að skilja hvað væri að ger­ast. Þessi þerapía stóð yfir í 14 vik­ur og ég fór úr því að keyra sjálf­an mig út á 200 km hraða og fór niður í 50 km hraða. Það breytt­ist margt. Ég fór að átta mig á aðstæðum þegar ég væri að skjót­ast upp. Á þess­um 14 vik­um áttaði ég mig á því hvernig ég gæti nýtt ADHD á já­kvæðan hátt. Ég hafði mikla orku og fór að nýta hana öðru­vísi. Ég minnkaði áfeng­isneyslu því það fóru of marg­ir dag­ar í van­líðan tengda henni.“

Smartland óskar Böðvar til hamingju með réttindin! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda