Það er ekki þverfótað fyrir dýrum einbýlishúsum á fasteignavef mbl.is. Þau eru jafnólík og þau eru mörg enda misjafnt hverju fólk er að leita að. Viltu búa í smartheitakassa í Akrahverfinu eða viltu hús með sál við Háuhlíð?
350.000.000 kr.
Við Háuhlíð í Reykjavík er að finna 304 fm einbýlishús sem reist var 1958. Húsið er teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt og mikið slot. Húsið er á fallegum stað við Öskjuhlíðina.
„Húsið er rúmgott og bjart, með fallegum rýmum og herbergjum, stórum gluggum sem hleypa inn ríkulegri birtu. Húsið er vandað og hefur fengið gott viðhald og býður upp á mikla möguleika. Falleg séríbúð á jarðhæð, öll nýuppgerð, með nýjum gólfefnum, hurðum, innréttingum og lögnum,“ segir á fasteignavef mbl.is.
Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Háahlíð 20
590.000.000 kr.
Ragnhildur Sveinsdóttir pílates-kennari er eigandi einbýlishúss við Þernunes 6 í Arnarnesinu. Það er 483 fm og var reist var 2008. Húsið státar af einstöku útsýni út á sjó.
Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Þernunes 6
450.000.000 kr.
Við Kaldakur er að finna 395 fm einbýli sem reist var 2008. Húsið er teiknað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt og Guðbjörg Magnúsdóttir innanhússarkitekt hannaði innréttingar.
Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Kaldakur 8
319.000.000 kr.
Það er eftirsóknarvert að búa við Stigahlíð í Reykjavík en í götunni er að finna fjölmörg falleg einbýlishús. Þetta hús er 350 fm að stærð og var reist 1989.
„Eignin, sem er á tveimur hæðum, er samtals 350,3 fm. og var að mikið endurnýjuð á árunum 2008-2009. Lóð og harðviðarverönd var standsett á sama tíma. Bílskúrshurðir endurnýjaðar og gólf málað í bílskúr árið 2019. Innanhússhönnun var í umsjón AVH arkitekta og Hönnu Stínu. Sérsmíðaðar innréttingar frá HBH. Glæsilegur, sérhannaður stigi, á milli hæða, setur einstakan svip á bjart miðrými hússins þar sem hátt er til lofts. Lýsing hússins var hönnuð af LÚMEX. Gólfefni eru m.a. sandsteinsflísar og dökkt plankaparket. Stór harðviðarverönd er afgirt, með potti, sturtuaðstöðu og geymslu,“ segir í auglýsingu á fasteignavef mbl.is.