Við Mosprýði í Garðabæ er að finna einstaklega fallegt parhús sem vakti athygli þegar það var auglýst til sölu. Um er að ræða 350,8 fm hús sem reist var 2008. Húsið er einstaklega vandað og fallegt og er á þremur pöllum. Óhætt er að segja að parhúsið sé eitt fínasta parhúsið í Garðabæ.
Baldur Ó Svavarsson hjá Inni og úti arkitektum hannaði húsið.
Björg Elva Jónsdóttir innanhússarkitekt teiknaði húsið að innan og voru innréttingar sérsmíðaðar hjá Fagus. Eldhúsinnréttingin í húsinu er frá danska framleiðandanum MultiForm. Gólfsíðir gluggar prýða húsið og er að finna mörg smáatriði í húsinu sem eru eftirsóknarverð. Efnisval í hurðum og innréttingum er liggjandi Eikarspón og ná allar innihurðir upp í loft svo dæmi sé tekið.
Húsið er glæsilegt að utan en það er málað í litnum Prýði sem er frá Slippfélaginu.
Nú hefur húsið verið selt. Hjónin Vilhjálmur Sigurðsson og Guðrún Benný Svansdóttir eigendur Hótel Laxá eru kaupendur hússins en þau keyptu það af Haraldi Árnasyni. Þau greiddu 283.000.000 kr. fyrir húsið.
Smartland óskar hjónunum til hamingju með glæsieignina!