Landsliðskona setur 145 fm íbúð á sölu

Íbúð Steinunnar og Vilhjálms er hlýleg.
Íbúð Steinunnar og Vilhjálms er hlýleg. Samsett mynd

Steinunn Björnsdóttir, fyrrverandi fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, og eiginmaður hennar, Vilhjálmur Theodór Jónsson, hafa sett íbúð sína á Háaleitisbraut á sölu. Íbúðin er skemmtilega innréttuð og er máluð í hlýlegum brúnum tónum.

Íbúðin er 145 fm með fjórum svefnherbergjum og hentar fjölskyldufólki vel. Þar af er 20,9 fm bílskúr sem stendur í bílskúrslengju fyrir framan húsið.

Það er opið úr eldhúsinu og inn í stofuna sem býr til heillandi rými. Eldhúsinnréttingin er svört með dökkri borðplötu. Þvottahús er við hliðina á eldhúsinu með fallegri sérsmíðaðri vængjahurð sem setur persónulegan svip á rýmið.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Háaleitisbraut 30

Við hliðina á eldhúsinu er þvottahúsið með fallegri sérsmíðaðri hurð.
Við hliðina á eldhúsinu er þvottahúsið með fallegri sérsmíðaðri hurð.
Það býr til heillandi rými þegar eldhúsið er opið inn …
Það býr til heillandi rými þegar eldhúsið er opið inn í borðstofuna.
Fráleggsborðið á ganginum á milli herbergja getur nýst í ýmislegt.
Fráleggsborðið á ganginum á milli herbergja getur nýst í ýmislegt.
Stofan er skemmtilega innréttuð með litríkum húsgögnum.
Stofan er skemmtilega innréttuð með litríkum húsgögnum.
Sjónvarpsstofan var áður svefnherbergi og er ekkert mál að breyta …
Sjónvarpsstofan var áður svefnherbergi og er ekkert mál að breyta því til baka ef þarf.
Íbúðin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi sem er þó …
Íbúðin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi sem er þó mjög miðsvæðis.
Baðherbergið er nýuppgert.
Baðherbergið er nýuppgert.
Barnaherbergið er málað í brúnum tónum og fellur vel að …
Barnaherbergið er málað í brúnum tónum og fellur vel að restinni að íbúðinni.
Barnaherbergi númer tvö.
Barnaherbergi númer tvö.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda