Edda og Jón Trausti selja 350 milljóna arkitektahöll

Edda Björk Kristjánsdóttir og Jón Trausti Ólafsson.
Edda Björk Kristjánsdóttir og Jón Trausti Ólafsson. mbl.is/Stella Andrea

Við Dalprýði 13 í Garðabæ er að finna 341 fm einbýli sem hannað var af Pálmari Kristmundssyni arkitekt. Sæbjörg Guðjónsdóttir innanhússarkitekt hannaði húsið að innan ef eldhúsið er frátalið. Það var hannað af Guðrúnu Atladóttur og voru innréttingar smíðaðar hjá SBS innréttingum.

Húsið var reist 2013 og er beintengt við náttúruna þar sem hraunið og mosinn flæðir nánast inn í stofu. Húsið er búið fallegum húsgögnum, lömpum, listaverkum og ýmsu öðru sem gleður augað. Í stofunni er til dæmis bólstraður flauelsbar ef einhvern myndi langa í drykk.

Eigendur hússins eru Jón Trausti Ólafsson forstjóri bílaumboðsins Öskju og Edda Björk Kristjánsdóttir mannauðsstjóri Húsasmiðjunnar. 

Nánari upplýsingar eru að finna á fasteignavef mbl.is: Dalprýði 13

Húsið við Dalprýði var reist 2013.
Húsið við Dalprýði var reist 2013.
Eldhúsið í húsinu er smekklega hannað.
Eldhúsið í húsinu er smekklega hannað.
Í stofunni er marmaraklæddur arinn og hillur í sama stíl.
Í stofunni er marmaraklæddur arinn og hillur í sama stíl.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda