Magnús greiddi 360 milljónir fyrir þakíbúðina

Magnús Sverrir Þorsteinsson hefur fest kaup á einstakri íbúð með …
Magnús Sverrir Þorsteinsson hefur fest kaup á einstakri íbúð með útsýni út á sjó. Samsett mynd

Auðmaður­inn Magnús Sverr­ir Þor­steins­son, for­stjóri bíla­leig­unn­ar Blue Car Rental, keypti íbúð í eigu Novators F11 ehf. á dögunum. Félagið er í eigu auðmannsins Björgólfs Thors Björgólfs­son­ar. Magnús greiddi 360.000.000 kr. fyrir íbúðina. Það verð er á pari við verð annarra íbúða sem seldar hafa verið í blokkinni. 

Það sem þessi íbúð, sem Magnús keypti, hefur umfram aðrar íbúðir er að Selma Ágústsdóttir innanhússhönnuður endurhannaði íbúðina og smartaði hana upp. Því hefði verðmiðinn líklega átt að vera örlítið hærri en það er önnur saga. 

Magnús hefur borist mikið á síðustu misseri og greindi Smartland frá því í fyrra þegar hann keypti sér svokallaðan Exit-jeppa sem þykir ógurlega fínn. 

Sjálfur býr Magnús í Reykjanesbæ þar sem hann rekur bílaleiguna Blue Car Rental sem er ein arðbærasta bílaleiga landsins. 

Smartland óskar Magnúsi til hamingju með nýju íbúðina! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda