Ragna Sif selur parhúsið á Kársnesi

Húsið er við Huldubraut.
Húsið er við Huldubraut.

Ragna Sif Þórsdóttir innanhússhönnuður og ljósmyndari hefur sett glæsilegt parhús sitt á Kársnesinu í Kópavogi á sölu.

Um er að ræða 238 fermetra vandað parhús á eftirsóttum stað á Kársnesinu. Húsið státar af sérsmíðuðum spónlögðum innréttingum, marmaraeyju, gólfsíðum gluggum sem veita fallegt útsýni og góðri lofthæð.

Húsið skiptist á tvær hæðir. Á neðri hæðinni má finna forstofuna, svefnherbergi, þvottahús, geymslu og tveggja herbergja aukaíbúð með sérinngangi sem auðvelt er að sameina aftur aðalhúsinu.

Á efri hæð er að finna rúmgóða stofu, glæsilegt baðherbergi, rúmgott svefnherbergi og eldhúsið, það er sérlega glæsilegt með sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik og stórri marmaraklæddri eyju með gashelluborði.

Í stof­unni eru stór­ir glugg­ar með fallegu útsýni og útgengt …
Í stof­unni eru stór­ir glugg­ar með fallegu útsýni og útgengt er út á svalir frá stofunni.
Eldhúsið er með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik og …
Eldhúsið er með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr reyktri eik og stórri marmaraklæddri eyju sem setur skemmtilegan svip inn á eldhúsið.

Garðurinn er gróinn og fallega skipulagður með heitum potti, verönd og hellulögðu bílaplani með hitaílögn.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Huldubraut 15b

Stór og myndarlegur garður, ásamt heitum potti, prýðir húsið.
Stór og myndarlegur garður, ásamt heitum potti, prýðir húsið.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda