Keypti sjö íbúðir á 565 milljónir

Jóhann Guðlaugur Jóhannsson á félagið V3 GJ ehf.
Jóhann Guðlaugur Jóhannsson á félagið V3 GJ ehf. Samsett mynd

Félag Jóhanns Guðlaugs Jóhannssonar, V3 GJ ehf., hefur fest kaup á sjö íbúðum í tveimur stigagöngum við Vesturvin í Reykjavík. Um er að ræða tvær íbúðir við Vesturgötu 66 og fimm íbúðir við Ánanaust 5. Alls er um 450 fm að ræða sem skiptist niður á þessar sjö íbúðir. Hluti af íbúðunum voru afhentar í september en aðrar verða afhentar eftir um það bil fjóra mánuði er kemur fram í kaupsamningi. 

Íbúðirnar við Vesturvin eru alvöru lúxusíbúðir. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá ítölsku fyrirtækjunum Cassina og Lema. Steinborðplötur eru íbúðunum, gólfsíðir gluggar, gólfhiti og svo er gert ráð fyrir að fólk geti verið með heitan pott á svölunum hjá sér. Blöndunartækin koma frá Grohe og eru fataherbergi algeng í íbúðunum.

Íbúðirnar við Vesturvin eru hannaðar fyrir þá sem vilja búa vel. Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður á Logos og Óttar Pálsson, lögmaður á Logos, keyptu tvær íbúðir í blokkinni við Vesturgötu fyrir samtals 429.000.000 kr. 

Svo bárust fréttir af því að augnlæknirinn María Soffía Gottfreðsdóttir, sem er eini augn-skurðlæknirinn á Íslandi, hafi keypt penthous-íbúð við Vesturvin og greitt fyrir hana 285.000.000 kr. 

Það er ekki hægt að segja annað en það stefni í gott götugrill þarna við Vesturvin. Nú og/eða skemmtilega húsfundi!  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

tannlæknir svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda