Jón Örn Guðbjartsson, markaðsstjóri Háskóla Íslands og Steinunn Gestsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, hafa fest kaup á parhúsi í 101. Það er hentugt því húsið er í göngufæri við vinnustað þeirra beggja.
Húsið, sem er við Suðurgötu, var reist 1984 og er 157,4 fm að stærð. Það var auglýst til sölu í mars á þessu ári. Jón Örn og Steinunn greiddu 167,9 milljónir fyrir húsið.
Húsið var hannað af arkitektunum Sigurði Björgúlfssyni og Richard Ólafi Briem og er svipsterkt og heillandi. Það er á pöllum og í húsinu er allt sem til þarf eins og stofa, eldhús, borðstofa, setustofa, geymsla, tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Garðurinn í kringum húsið er líka fallegur.
Þegar húsið var auglýst til sölu var það sérstaklega tekið fram að eldhúsið væri nýuppgert en þar er sérsmíðuð innrétting frá Häcker, gott skápapláss og marmari á gólfum. Fiskibeinaparket er á gólfum í húsinu og nýir fataskápar í tveimur svefnherbergjum.
Smartland óskar Jóni Erni og Steinunni til hamingju með húsið!