Voru ekki sammála um hvernig eldhúsið ætti að snúa

Vala Garðardóttir fornleifafræðingur býr í Bjálkahúsi í Mosfellsdal ásamt eiginmanni sínum, Ásgeiri Ragnarssyni lögmanni. Þegar þau voru að innrétta húsið fengu þau Björgvin Snæbjörnsson arkitekt til að hanna innréttingar. Í eldhúsinu er afar fallega græn innrétting og þurfti að hafa mikið fyrir því að velja rétta litinn á innréttinguna. Þegar kom að því að hanna eldhúsið voru hjónin, sem eru mjög samhent dagsdaglega, ekki alveg sammála hvernig eldhúsið ætti að snúa. Aðalmálið var hvort það ætti að vera eyja og hvar vaskurinn ætti að vera? Úr varð að Móskarðshnjúkar blasa við þeirri manneskju sem eldar hverju sinni. 

Hvaða steinn er á borðplötunni?

„Ég fékk hann í Fígaró, þetta er granít með leðuráferð. Það er eins og þetta sé hamrað. Það er hægt að henda hverju sem er á þetta, pottum og öllu því. Þetta þolir allt,“ segir Vala.

Lá það fyrir að eldhúsið ætti að vera svona?

„Nei, þar vorum við óssammála, ég og maðurinn minn. Yfirleitt eru það konurnar sem ráða hvernig eldhúsið á að vera,“ segir hún og hlær.

„Þetta er samt svo fyndið af því að þegar við vorum að hugsa um þetta var hann með mjög sterkar skoðanir á því hvernig eldhúsið ætti að vera. Hann hefur samt eiginlega aldrei eldað. Þetta varð sameiginleg útkoma. Ég vildi ekki hafa eyju, ég vildi hafa vaskinn hér,“ segir hún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda