Féllu fyrir húsi í niðurníðslu og gáfu því nýtt líf

Hjónin Ómar Másson og Þóra Löve eru gestir Heimilislífs. Þau sáust fyrst í Tjarnarbúð 1969 og hafa verið saman síðan þá. Þau eru ekki alltaf sammála um allt en hafa náð að lyfta hvort öðru upp og hjálpast að við að láta drauma sína rætast. Heimili þeirra er ekki hefðbundið heimili því í kringum bankahrunið fóru þau að kaupa eldri húsgögn og gera þau upp. Núna reka þau verslunina Sixties Retro húsgögn sem er inni á heimilinu. 

„Hér erum við búin að búa í 34 ár. Okkur leist nú ekki mikið á í upphafi. Garðurinn var í algerri niðurníðslu og húsið var hryllilegt að sjá að utan. Var hvítmálað að utan og gluggarnir málaðir svartir,“ segir Ómar og Þóra tekur í sama streng. Þau tvö hafa lyft grettistaki og bæði byggt við húsið og lagað það að sínum smekk. Þótt þau séu ekki mikið að breyta í stofunni þá gerist oft eitthvað óvænt. Nú eru þau til dæmis með nýaaldartekkborð í borðstofunni því þau seldu undan sér borðstofuborðið sem var þar fyrir. 

„Gömul húsgögn eru ekki mitt uppáhald heldur húsgögn frá 1955 og nær okkur. Þegar talað er um gömul húsgögn þá er ég að tala um 1940 og þar fyrir aftan,“ segir Ómar. 

„Þetta er ekki antík, þetta er retró,“ segir Þóra. 

Ómar er smiður að mennt og hefur þekkingu á því hvernig eigi að gera upp húsgögn. Hann hafði þó ekki unnið sem smiður í fjölmörg ár þegar Þóra fór að rogast heim með húsgögn sem hún ætlaði að gera upp sjálf. Þá leist Ómari ekki á blikuna og greip inn í. 

„Ég hætti í smíðinni 1980. Stuttu síðar keyptum við blómabúð og rákum hana í 15 ár. Árið 1996 seldum við, skildum börnin eftir og fluttum til Noregs og vorum fimm ár í Noregi,“ segir Ómar en eftir að þau fluttu heim unnu þau ekki á sama staðnum. Hann vann í Byko og hún í Garðheimum. 

„Hún keypti húsgögn og var að laga og ég sá að þetta var dæmi sem gekk ekki upp,“ segir Ómar og hlær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda