Halda sín fyrstu jól saman

Karitas Sveinsdóttir innanhússarkitekt.
Karitas Sveinsdóttir innanhússarkitekt. mbl.is/Árni Sæberg

Karitas Sveinsdóttir, innanhússarkitekt hjá HAF studio, er ákaflega mikið jólabarn. Hún byrjar að skreyta um miðjan nóvember og elskar allt sem tengist jólunum. 

„Ég myndi segja að ég væri mjög mikið jólabarn. Er yfirleitt komin í gírinn í byrjun september eða um leið og það fer að myrkva aðeins úti, þá kemur þetta bara yfir mig. Maðurinn minn og fjölskylda eru alltaf jafn hissa en ég deili þessu sem betur fer með bestu vinkonu minni,“ segir Karitas.

Karitas kann að leggja fallega á borð.
Karitas kann að leggja fallega á borð. mbl.is/Árni Sæberg

 

Hvenær byrjar þú að skreyta?

„Ég er oft búin að setja hjartaljósið mitt í eldhúsgluggann og seríur á svalirnar um miðjan nóvember. Síðan fer aðeins að bætast við jóladótið þegar líður að fyrsta í aðventu. Og svo fer það bara eftir því hversu lengi ég næ að halda í mér að byrja að skreyta jólatréð. Síðustu jól var það komið upp og fullskreytt í byrjun desember.“

Þótt Karitas sé jólabarn og elski að jólaskreyta í kringum sig er hún mínimalískt jólabarn. Hún ofhleður ekki heldur velur jólaskraut sitt af kostgæfni.

„Það er ekki spurning um magnið á skrauti sem skapar þessa jólastemmningu fyrir okkur, heldur eru það til dæmis jólakransinn á útidyrnar, grenigreinar í vösum, góð jólatónlist og lyktin af mandarínunum og jólakertunum sem skapa þessa yndislegu jólaupplifun á okkar heimili. Það er kannski einna helst hægt að sjá hversu mínímalískur stíllinn minn er á nýja aðventustjakanum sem er að koma í búðir á næstu dögum,“ segir hún.

Stellið er frá Royal Copenhagen.
Stellið er frá Royal Copenhagen. mbl.is/Árni Sæberg

Karitas og Hafsteinn Júlíusson, eiginmaður hennar og vinnufélagi, fluttu á árinu og í ár verða jólin svolítið öðruvísi en oft áður.

„Við fjölskyldan erum að halda okkar fyrstu jól saman núna í ár. Við höfum annars alltaf skipst á að vera hjá foreldrum mínum og síðan hjá tengdaforeldrum mínum, sem hefur verið svo skemmtilegt. En okkur fannst vera kominn tími til að byrja okkar eigin jól með þeim hefðum sem við elskum mest. Svo ég er að fara að leggja í fyrsta skiptið á mitt eigið jólaborð. Ég keypti ofsalega fallegar hörservíettur og kerti í Kaupmannahöfn sem passa svo vel við fallegu Royal Copenhagen-diskana okkar. Ætli ég muni ekki hafa fallegar greinar í vasa úr garðinum frá mömmu og pabba og skreyta borðið með könglum og kertum,“ segir hún.

Glösin eru úr Casa.
Glösin eru úr Casa. mbl.is/Árni Sæberg

Hvað finnst þér skipta máli þegar þú leggur á borð?

„Mér finnst alveg ótrúlega gaman að leggja fallega á borð og ef ég er með matarboð er það oft það fyrsta sem ég geri áður en við byrjum að elda.

Að taka smá tíma í að leggja á borðið með servíettum, kertum, einhverju lifandi í vasa eða smá skrauti finnst mér jafn mikilvægt eins og að elda matinn. Okkur hjónunum finnst alveg ótrúlega gaman að vinna í eldhúsinu og gera mat fyrir okkur og aðra og það er alltaf stór hluti af þessu að gera borðið fínt. Að setjast við fínt borð er fyrsti þátturinn af góðri matarupplifun.“

Ein af hefðunum er að borða pabbabrauð um jólin. Takið …
Ein af hefðunum er að borða pabbabrauð um jólin. Takið eftir kertastjakanum á borðinu - hann er eftir Karitas og mann hennar, Hafstein Júlíusson, en saman reka þau HAF Studio. mbl.is/Árni Sæberg

Ertu að safna stelli?

„Ég er að safna Royal Copenhagen, sem mér finnst svo fallegt og klassískt og hentar að mínu mati svo vel sem bæði sparistell og hversdags.“

Karitas lagði á borð með Royal Copenhagen-stellinu sem selt er í Kúnígúnd. Svörtu stjakarnir eru frá Postulínu en hnífapörin eru úr Casa sem og glösin.

Karitas og Hafsteinn eru bæði alin upp við það að það sé aspassúpa í forrétt og hamborgarhryggur í aðalrétt.

Pabbabrauð er með hnausþykku hangikjöti.
Pabbabrauð er með hnausþykku hangikjöti. mbl.is/Árni Sæberg

„Svo hef ég lært að gera æðislegan Toblerone-ís af tengdamóður minni sem er alveg ótrúlega ljúffengur. Svo þetta verður eldað á okkar heimili á aðfangadag.“

Hvað finnst þér best við jólin?

„Bara allt sem tengist jólunum finnst mér æðislegt. En að pakka inn jólagjöfunum finnst mér alveg ótrúlega skemmtilegt og notalegt með góðri tónlist og kannski einu púrtvínsglasi, en ég hef lært svo mikið af mömmu minni sem hefur alltaf nostrað svo við hvern einasta pakka og gerir þá því að listaverki undir trénu.

Karitas og maðurinn hennar elska að fá sér osta og …
Karitas og maðurinn hennar elska að fá sér osta og smá jólavín í desember. Árni Sæbergmbl.is/Árni Sæberg

En auðvitað er það besta við jólin að vera í rólegheitum með fjölskyldu og vinum og borða góðan mat. Svo er þetta bara tími sem ég hef alltaf elskað, því frá því ég var lítil höfum við alltaf haft svo skemmtilegar hefðir sem að gera jólin að þessum dásamlega tíma. Í minni fjölskyldu hefur til dæmis alltaf verið hefð að fá „pabbabrauð“ með hangikjöti og heitt súkkulaði með rjóma á Þorláksmessu meðan klárað er að pakka inn síðustu pökkunum og jólatréð skreytt. Þetta brauð hefur verið hefð hjá fjölskyldu mömmu minnar um jólin í tugi ára því langamma mín hún Úlfhildur gerði þetta alltaf í gamla daga en svo tók pabbi brauðið í sínar hendur á okkar heimili. En þetta bragð er jólin fyrir mér! Svo eftir að ég kynntist Hafsteini hefur dásamlegi Toblerone-ísinn verið eitt af því sem ég hlakka mikið til að fá yfir jólin því hann gerum við bara á þessum tíma. Svo er þetta bara þessar góðu stundir sem maður á með vinum með góðu víni eða glöggi og piparkökum með gorgonzola-osti. Það lærðum við hjónin á Ítalíu meðan við bjuggum þar og höfum verið svo hrifin af síðan. Furðuleg en alveg ofsalega góð blanda, mæli með!“

Toblerone-ís

½ l rjómi

4 eggjarauður

1 bolli púðursykur

100 g Toblerone

Þeytið rjómann og setjið í skál. Stífþeytið svo eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman. Brytjið 100 g af Toblerone og bætið varlega út í blönduna. Hrærið síðan rjómanum varlega saman við. Hafið svo í frysti í a.m.k. sólarhring. Setjið á fallegan disk og skreytið með Toblerone og granatepli eða ávöxtum eftir smekk.

Toblerone-ísinn er ómissandi.
Toblerone-ísinn er ómissandi. mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál