Ertu ráðþrota með unglingagjafirnar?

Það getur verið erfitt að finna gjöf fyrir unglinginn á …
Það getur verið erfitt að finna gjöf fyrir unglinginn á heimilinu. Getty Images

Unglingar eru upp til hópa afar kröfuharðir og því getur það tekið á taugarnar að finna gjöf sem hittir í mark. Hér er að finna nokkrar hugmyndir að góðum gjöfum sem íslenskir unglingar ættu að vera sáttir við.

Þráðlausi WooFit Go-hátalarinn frá danska merkinu SACKit er sérlega flottur, …
Þráðlausi WooFit Go-hátalarinn frá danska merkinu SACKit er sérlega flottur, en hægt er að skipta um framhlið hátalarans og velja lit eftir skapi. Casa, 10.990 kr.
Fallegir eyrnalokkar frá Fashionology setja punktinn yfir i-ið. Lokkarnir eru …
Fallegir eyrnalokkar frá Fashionology setja punktinn yfir i-ið. Lokkarnir eru úr silfri. GK Reykjavík, 8.995 kr.
Timberland-skór eru löngu orðnir klassískir auk þess sem þeir henta …
Timberland-skór eru löngu orðnir klassískir auk þess sem þeir henta vel fyrir íslenska unglinga. Skóna má fá í ýmsum litum og útfærslum, þó hinn klassíski, gulbrúni litur sé eflaust vinsælastur. Timberland búðin, 27.990 kr.
Hlý húfa á kollinn er mikið þarfaþing. Stüssy stendur alltaf …
Hlý húfa á kollinn er mikið þarfaþing. Stüssy stendur alltaf fyrir sínu, en húfuna má einnig fá í bláu. Húrra Reykjavík, 5.990 kr.
Skemmtileg bók er alltaf góð gjöf. Er ekki allt í …
Skemmtileg bók er alltaf góð gjöf. Er ekki allt í lagi með þig? er ný, íslensk skáldsaga eftir Elísu Jóhannsdóttur, en hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í ár. Sögunni er lýst sem alvöru unglingabók um vinátt, vinslit og foreldravandamál. Forlagið, 4.190 kr.
Heyrnartól eru góð fjárfesting, enda vilja foreldrar gjarnan sleppa við …
Heyrnartól eru góð fjárfesting, enda vilja foreldrar gjarnan sleppa við að hlusta á þá tónlist sem er unglingum að skapi. Það er mikill klassi yfir þessum þráðlausu Bang og Olufsen heyrnartólum sem hönnuð eru af Jacob Wagner. Ormsson, 39.900 kr.
Codenames er stórskemmtilegt borðspil sem ætti að kæta hvern sem …
Codenames er stórskemmtilegt borðspil sem ætti að kæta hvern sem er. Hver veit nema unglingurinn líti upp úr snjallsímanum sínum ef hann fái skemmtilegt spil í jólagjöf. Spilavinir, 4.250 kr.
Unglingar eiga það til að henda fötunum sínum beinustu leið …
Unglingar eiga það til að henda fötunum sínum beinustu leið á gólfið. Fallegur snagi getur bjargað málunum og hjálpað til við að halda herberginu hreinu. Línan, 6.900 kr.
Húðin er ekki alltaf upp á sitt besta á unglingsárunum. …
Húðin er ekki alltaf upp á sitt besta á unglingsárunum. Ferskur andlitshreinsir frá Skyn Iceland djúphreinsar húðina án þess að ræna hana raka. Nola.is, 3.990 kr.
Það er ekki töff að klæða sig illa. Annar hver …
Það er ekki töff að klæða sig illa. Annar hver unglingur á þykka dúnúlpu til að hjúfra sig í, restin myndi eflaust vilja fá eina slíka í jólagjöf. The North Face er víst sérlega heitt merki meðal unglinga í dag. Útilíf, 29.900 kr.
Margir foreldrar skilja hreinlega ekki hvers vegna óhreinir larfar lenda …
Margir foreldrar skilja hreinlega ekki hvers vegna óhreinir larfar lenda gjarnan undir rúmi, og út um allt gólf, í unglingaherberginu. Hver veit nema táningurinn á heimilinu væri duglegri að halda hreinu ef hann ætti eigin taukörfu. Rúmfatalagerinn, 3.595 kr.
Það reynist oft þrautin þyngri að ná unglingum á fætur …
Það reynist oft þrautin þyngri að ná unglingum á fætur á morgnana. Vekjaraklukka sem líkir eftir dagsljósi gæti bjargað málunum og létt örþreyttum unglingum (sem og foreldrum þeirra) lífið. Eirberg, 12.950 kr.
Unglingsstelpur eyða gjarnan miklum tíma í að snurfusa á sér …
Unglingsstelpur eyða gjarnan miklum tíma í að snurfusa á sér hárið. Hægt er að slá tvær flugur í einu höggi og gefa þeim gjafapakka sem inniheldur bæði sléttu- og krullujárn. Elko, 7.994 kr.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál