Ekki fara á hausinn um jólin

Ansi margir vakna við vondan draum þegar Visa-reikningurinn dettur í hús eftir jól. Eyðslupúkinn gerir nefnilega gjarnan vart við sig á aðventunni. Svona þarf þetta þó alls ekki að vera, enda má yfirleitt vel draga úr útgjöldunum án þess að það komi niður á jólastemningunni. Hér að neðan eru nokkur ráð sem auðvelt er að tileinka sér. 

Kostnaðaráætlun

Það að setja saman kostnaðaráætlun er ekki nóg eitt og sér, því nauðsynlegt er að fara eftir henni. Ekki plana hin fullkomnu jól, skoðaðu frekar hverju þú hefur efni á og hugleiddu í hvað þú ert tilbúin/n að spandera. Jólin eru nefnilega bara í nokkra daga, ekki setja nýja árið í uppnám með óþarfa bruðli.

Færri og ódýrari gjafir

Jólagjafakaup geta auðveldlega farið út í vitleysu. Gott er að skrifa niður lista yfir þá aðila sem þú ætlar að gefa jólagjöf, og ákveða svo hversu miklu þú vilt eyða í hvern pakka. Tilkynntu vinum og ættingjum tímanlega að þú ætlir að gefa færri eða ódýrari gjafir í ár. Það getur einnig dregið úr pressu á þá.

Notaðu hyggjuvitið

Gjafir þurfa alls ekki að vera dýrar. Þeir sem eru sniðugir geta vel föndrað gjafir sjálfir en hægt er að fá fullt af hugmyndum á Pinterest eða öðrum síðum á netinu. Þá má til dæmis kaupa hluti á nytjamörkuðum og gera upp, búa til konfekt, baka dýrindis smákökur eða prjóna trefil. Þeir sem ekki eru flinkir í höndunum, eða góðir að baka, geta gefið heimatilbúnar ávísanir. Boð í dögurð eða barnapössun gæti til dæmis slegið í gegn.

Verslaðu á útsölum

Þeir sem sýna fyrirhyggju geta að sjálfsögðu byrjað að kaupa gjafir löngu fyrir jól. Gott er að notast við útsölur, auk þess sem bókamarkaðir standa ávallt fyrir sínu. Með þessu móti má einnig dreifa kostnaðinum yfir lengra tímabil í stað þess að strauja kortið óheyrilega í desember.

Umhverfisvænt og ódýrt

Gjafapappír er kannski ekki dýr, en safnast þegar saman kemur. Kjörið er að nota það sem til fellur á heimilinu eins og dagblöð og auglýsingabæklinga sem hrúgast inn um lúguna. Sumir geyma einnig pappír eða gjafaöskjur utan af eigin gjöfum og nota að ári. Þá má vel nota afganga af garni eða tína köngla til að skreyta gjafirnar með. Þarna má spara svolítinn aur, auk þess sem endurvinnslan kemur sér vel fyrir náttúruna.

Gjafalaus jól

Þeir allra hörðustu kjósa hugsanlega að tileinka sér gjafalaus jól og sleppa hreinlega öllu pakkastandi og gjafakaupum.

Ekki spandera í skraut

Jólaskraut er rándýrt, það má því bæði notast við gamla góða skrautið í stað þess að fjárfesta í glænýju prjáli eftir nýjustu tískustraumum. Einnig má gera góð kaup á nytjamörkuðum og útsölum eftir jól. Þá er sniðugra að kaupa frekar vandað skraut, sem endist, í stað þess að eyða í muni sem lenda líklegast í ruslinu eftir jól.

Jólakötturinn er löngu dauður

Það er alger óþarfi að kaupa nýtt jóladress á hverju ári. Bæði er gáfulegra, hagstæðara fyrir pyngjuna og betra fyrir jörðina að notast við það sem finna má í skápnum. Ef krakkana vantar ný föt er gott að fjárfesta í fötum sem þau geta notað áfram, í stað þess að kaupa sérstök spariföt sem eingöngu verða notuð í örfáum jólaboðum. Ekki gleyma notuðum fötum af systkinum, frænkum og frændum. Einnig má kaupa fínasta sparifatnað á nytjamörkuðum og sölusíðum á netinu.

Samvera þarf ekki að kosta neitt

Jólatónleikar, hlaðborð og tíðar kaffihúsaferðir geta kostað sitt. Mestu máli skiptir að eyða tíma með fjölskyldu og vinum, en ekki peningum. Það kostar til dæmis ekkert að grípa í spil á aðventunni, auk þess sem lítill kostnaður fylgir því að hittast og baka saman smákökur eða gera konfekt. Munið bara að skella jólatónlist á fóninn og skemmta ykkur.

Gætið hófs í matarinnkaupum

Oftast er óþarfi að kaupa svona mikið af matvöru og sælgæti. Gerðu innkaupalista og farðu vel yfir hann. Er í raun og veru þörf fyrir allt þetta gotterí? Rifjaðu upp hvað varð afgangs síðustu jól og lenti í ruslinu? Mundu líka að gjarnan hefst heilsuátak skömmu eftir áramót, og því ekki gott að vera með fulla skápa af konfekti. Ef þú sérð um matarboð á jólum getur þú beðið gesti að borga í matnum, skaffa drykki, meðlæti eða eftirrétti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál