„Það hefur ekki kviknað í jólatrénu eða neitt“

Þórhallur Sigurðsson eða Laddi eins og hann er kallaður vill …
Þórhallur Sigurðsson eða Laddi eins og hann er kallaður vill hafa allt eins. mbl.is/Haraldur Jónasson / Hari

Jólahefðir Þórhalls Sigurðssonar, eða Ladda, eru í föstum skorðum enda segir hann óþarfa að breyta því sem aldrei klikkar. Á aðfangadag er fjölskyldan vön að borða hamborgarhrygg, en á jóladag er hangikjöt jafnan borið á borð.

„Svoleiðis hefur þetta verið síðan ég byrjaði að búa og halda jól. Með hamborgarhryggnum er síðan þessi frábæra sósa, brúnaðar kartöflur, rauðkál og baunir. Og auðvitað er alltaf drukkið bland líka. Ekki má gleyma því,“ segir Laddi og bætir við að þetta sé algerlega ómissandi.

Eftirrétturinn hefur einnig verið sá sami í að minnsta kosti 15 ár, enda ljúffengur með eindæmum.

„Við förum yfirleitt og heimsækjum systur konunnar og fjölskylduna hennar og fáum eftirréttinn þar. Þar fáum við þennan yndislega frómas, en hann hefur verið borinn á borð í ábyggilega 15 ár.“

Þegar Laddi er spurður hvort honum hafi aldrei dottið í hug að breyta út af vananum, hrista svolítið upp í hlutunum og bera fram kalkún, rjúpu eða annað slíkt harðneitar hann.

„Ég hef smakkað kalkún og fannst hann ekkert góður, en ég man ekki eftir því að hafa smakkað rjúpu. Það bara kemur einhvern veginn ekki til greina. Við viljum ekki breyta matseðlinum því hann klikkar ekki. Maður er ekkert að breyta því sem virkar,“ segir Laddi hress í bragði.

Þegar Laddi er spurður hvort hann lumi á eftirminnilegri jólasögu segir hann svo ekki vera, enda hafi jólin iðulega heppnast hreint prýðilega.

„Það hefur ekki kviknað í jólatrénu eða neitt, enda erum við ekki með jólatré. Við erum bara með litla jólatrésskreytingu. Það er allt of mikið vesen að vera með stórt jólatré. Pakkarnir eru síðan geymdir á sama stað og litlu jólatrén eru. Þar eru þeir í góðri hrúgu,“ segir Laddi og bætir við að þau hjónin skreyti temmilega mikið fyrir jólin.

„Við skreytum ekkert rosalega mikið. Það eru þessi litlu tré og svo erum við með seríur sem við setjum aðallega á einn stað. Svo skreytum við með kertum og svona. Það er voða jólalegt. Yfirleitt erum við að þessu í kringum mánaðamótin, en ég ætla einmitt að fara út á svalir í vikunni og setja þar upp jólaljós og greni. Það er alltaf skemmtilegt.“

Þótt að Laddi hafi sjálfur sungið ófá jólalög, og jafnvel gefið út jólaplötu, þykir honum fólk iðulega byrja of snemma að spila jólalög.

„Þá er maður bara búinn að fá upp í kok af þeim þegar kemur að jólunum. Við miðum þetta við mánaðamótin, eða 1. des. Þá finnst mér allt í lagi að fara að setja þetta í gang.“

En hvað skyldi Ladda þykja mikilvægast þegar kemur að því að halda góð og ánægjuleg jól?

„Jólaandinn og að allir séu í jólaskapi. Góður matur, að hlusta á jólalög og messuna í útvarpinu. Svo höfum við undanfarin ár farið nokkur saman á jólatónleika Mótettukórsins í Hallgrímskirkju. Það er mjög jólalegt og skemmtilegt,“ segir Laddi og bætir við að jólahaldið sé venjulega í mjög föstum skorðum og einkennist alls ekki af neinum látum.

mbl.is/Haraldur Jónasson / Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál