Trjádrumbur sem kúkar jólagjöfum skrýtin hefð

Marta og fjölskylda hennar ætla að halda upp á jólin …
Marta og fjölskylda hennar ætla að halda upp á jólin í Barcelona.

Marta Rún Ársælsdóttir og sambýlismaður hennar, Arnór Eyvar Ólafsson, fluttust til Barcelona þegar honum bauðst gott starf þar ytra. Marta hafði þá skráð sig í fjarnám í miðlun og almannatengslum við Háskólann á Bifröst, en auk þess að stunda nám skrifar Marta fyrir vefsíðuna Femme.is. Skötuhjúin munu halda sín fyrstu jól í Barcelona í ár, og ætlar fjölskylda Mörtu að dvelja hjá þeim yfir hátíðirnar. 

„Við höfum lengi verið að gæla við það að prufa eitthvað nýtt um jólin, jafnvel ferðast og vera tvö yfir hátíðirnar. Fjölskylduna mína langaði að koma til Barcelona um jólin og vera með okkur og mér og kærastanum mínum fannst það frábær hugmynd og góður millivegur,“ segir Marta, sem hingað til hefur alltaf haldið jólin heima á klakanum.

„Við höfum aldrei haldið jólin annars staðar en á Íslandi og einungis einu sinn saman. Þetta verða því spennandi, skemmtileg og öðruvísi jól fjarri gömlu hefðunum.“

Marta segir að hátíðlegt sé um að litast í Barcelona í desember og mikil jólastemning. Það hafi því ekki verið erfið ákvörðun að halda upp á jólin þar ytra.

„Barcelona er alveg ótrúlega jólaleg yfir hátíðirnar og það var í raun tilfinningin sem ég fékk í desember í fyrra sem fékk mig til að vilja prufa að eyða jólunum hérna. Allar göturnar í miðbænum eru mismunandi skreyttar með alls konar ljósum og seríum. Það er alls staðar verið að grilla hnetur, jólamarkaðir hér og þar og almennt mikil jólastemning. Það getur verið kalt í desember en það er ekkert sem hlý kápa og trefill geta ekki bjargað. Kuldinn er hins vegar jólalegur og satt best að segja tengi ég betur við jólin í smá kulda.“

En hvernig skyldu heimamenn halda jólin, eru þeir jafn jólaóðir og Íslendingar?

„Jólahefðirnar í Katalóníu eru töluvert frábrugðnar því sem við eigum að venjast. Eins furðulegt og fólkinu hér finnst að það séu 13 stríðnir jólasveinar á Íslandi, þá finnst mér þeirra hefð enn furðulegri. Hinn 8. desember stilla þau upp trjádrumbi með áteiknuðu andliti í stofunni, sem þau hugsa um. Þau leggja teppi yfir hann til að halda á honum hita og gefa honum nammi að borða. Þessi trjádrumbur kúkar svo jólagjöfunum á aðfangadagskvöld eða jóladagsmorgun þegar krakkarnir berja hann með priki. Þetta er kallað „caga tíó“ og svo er annað áhugavert jólaskraut, svokallaður „caganer“ sem eru hinar ýmsu fígúrur að kúka. Hinn 6. janúar eru vitringarnir þrír svo kvaddir og í hefðbundnu jólahaldi voru stærri gjafirnar gefnar þá,“ segir Marta og bætir við að jólakrásirnar séu einnig töluvert frábrugðnar þeim sem Íslendingar eiga að venjast.

„Á aðfangadagskvöldi og í hádegi jóladags er til dæmis algengt að bjóða upp á nokkurs konar pasta- og kjötsúpu, eða „sopa de galets“, ofnbakaðan kjúkling „catalan style“ sem nefnist „rostit amb pinyons og núggat þykir mjög týpískur eftirréttur. Hinn 26. desember eru svo allir afgangar nýttir í fyllingu fyrir canneloni, svona svipað og margir Íslendingar gera með tartalettur. Yfir hátíðirnar drekka Katalónar einnig mikið af cava sem er spánskt freyðivín.“

Marta segir að jólin í ár muni klárlega litast af því að vera haldin erlendis og að ekki verði haldið fast í allar gömlu, íslensku hefðirnar.

„Planið er að hafa jólabröns heima á aðfangadag og fara síðan á góðan veitingastað um kvöldið. Þessi jól verða því frábrugðin fyrri jólum, þar sem maður finnur ilminn af rjúpunni og villibráðinni sem yrði á boðstólum. Svo verður þessi heilagi tími þar sem pakkarnir undir trénu eru opnaðir einnig öðruvísi. Þrátt fyrir það erum við ótrúlega spennt og ef til vill munu einhverjar nýjar hefðir bætast við þær gömlu,“ segir Marta.

„Það er vonandi að eftir þessi jól geti ég mælt með því fyrir alla að prufa að brjótast aðeins frá hefðunum og reyna eitthvað nýtt um jólin. Auðvitað óska ég svo öllum landsmönnum góðra, gæfuríkra og hvítra jóla.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál