Stingur af til útlanda fyrir jólin

Nanna Rögnvaldsdóttir.
Nanna Rögnvaldsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldar er lítið jólabarn, en hún er hreinlega hætt að halda jól. Í stað þess að standa sveitt yfir pottum á aðfangadag hefur Nanna því brugðið á það ráð að flýja og dvelja í útlöndum yfir hátíðirnar. 

„Mér finnst bara gott að breyta til. Mér fannst leiðinlegt að jólin væru alltaf eins. Ég vildi hafa tilbreytingu en fjölskylda mín, eins og flestar aðrar, er vanaföst og vildi hafa þetta allt eins. Barnabörnin vildu bara borða hjá ömmu og ég vildi gefa þeim tækifæri til að mynda sínar eigin jólahefðir. Og ég gerði það með því að stinga af,“ segir Nanna aðspurð hvort hún hafi hreinlega verið orðin hundleið á jólunum.

„Í fyrra fór ég til Trieste og Feneyja, og þar áður var ég á Möltu og Madeira. Ég er ekki búin að upplýsa hvert ég fer í ár, ég geri það ekki fyrr en ég er farin út. Þá læt ég fólk giska á hvar ég er,“ bætir Nanna við. „Ég fer alltaf út að borða á aðfangadagskvöld, og þegar ég kem á staðinn sem ég gisti á spila ég lagið „O helga natt“ með Jussi Björling og held jól í fimm mínútur. Svo er ég bara búin.“

Nanna segir að jólastressið sem landlægt er á Íslandi hafi átt sinn þátt í því að hún ákvað að breyta til, en henni þykir fólk gera of mikið úr jólunum.

„Þau byrja allt of snemma og fólk leggur of mikla áherslu á þau. Það snýst allt um jólin og ef eitthvað er ekki eins og það var í fyrra þá er allt ónýtt. Mér leiðist slíkt mikið. En hinsvegar fannst mér jólin alltaf mjög skemmtileg, og finnst það enn í raun og veru,“ segir Nanna og bætir við að það megi þó ekki taka þannig að henni hafi liðið illa um jólin. En hvernig brást fjölskyldan við tíðindunum?

„Alveg ljómandi vel. Eins og ég segi, þau sakna mín ekkert,“ segir Nanna og skellir upp úr. „Sonur minn sagðist hafa komist að því að ég væri ekki ómissandi þegar hann uppgötvaði að hann gat soðið sitt eigið jólahangikjöt.“

Nú er blaðamaður heldur betur búinn að koma sér í bobba, enda stoðar lítið að spyrja Nönnu hefðbundinna jólaspurninga eins og hvort hún haldi fast í einhverjar jólahefðir, eða hvort hún skreyti mikið á aðventunni. Hún kannast vel við það, enda hefur hún áður komið fjölmiðlafólki í opna skjöldu með viðhorfum sínum til jólanna.

„Fólk er alltaf spurt hvort það sé jólabörn og allir segja já. Ég man að ég var einu sinni spurð að því í útvarpsviðtali í beinni útsendingu hvort ég væri ekki jólabarn og ég sagði nei. Þetta kom útvarpskonunni svo á óvart að hún vissi ekki hvað átti að segja,“ segir Nanna og kímir. Hún segist jafnframt vera löngu hætt að skreyta heima hjá sér. En hvað borðar hún á jólunum?

„Þegar ég var stödd í Trieste í fyrra borðaði ég til dæmis á hipstera-veitingastað og fékk sebrakjöt, villisvín og kengúru. Það hefur ekki verið hefðbundinn jólamatur á þessum stöðum sem ég hef farið á hingað til. Ég veit að margir eru mjög bundnir af hefðum, hjá mér hefur það þó aldrei verið þannig. Það er bara um að gera að láta ímyndunaraflið ráða,“ segir Nanna hress að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál