Á meðan flestir landsmenn sátu við matarborðið og gæddu sér á jólasteikinni jólin 2009 buðu þau Guðrún María Magnúsdóttir og Páll Þór Vilhelmsson frumburð sinn, Dagbjörtu Hönnu, velkominn í heiminn. Stúlkan lét bíða eftir sér en móðir hennar mælir með því að eiga barn á aðfangadag.
Það er eins og það hafi verið skrifað í stjörnurnar að Dagbjört Hanna ætti að koma í heiminn á jólunum enda komið langt fram yfir settan dag og búið að bjóða móður hennar í gangsetningu rétt fyrir jól sem hún afþakkaði. „Ég vildi leyfa mér að klára þessa daga sem má fara framyfir,“ sagði Guðrún María sem átti tíma í gangsetningu eftir jól.
„Ég átti hana á Landspítalanum, það var rosalega róleg stemning. Það var skreytt með jólaskrauti og boðið upp á jólamat. Ég held að það hafi verið hamborgarhryggur eða eitthvað svoleiðis,“ segir Guðrún María sem hafði ekki mikinn tíma til að borða kvöldmat þar sem Dagbjört Hanna fæddist korter yfir sjö um kvöldið. Móðir Guðrúnar Maríu kom þó með afganga fyrir nýbökuðu foreldrana seinna um kvöldið.
„Við gerum oft grín að því að við séum alveg svakalega trúuð,“ segir Guðrún María og hlær en yngri dóttir þeirra hjóna, María Bjarney fæddist á páskadag fyrir rúmum tveimur árum. Guðrún María hefur því upplifað að eiga barn bæði um jól og páska og mælir eindregið með því að eiga barn á jólunum. „Það var miklu rólegri stemning á aðfangadag. Það var alveg mun meira að gera í apríl þegar ég átti seinni stelpuna og við þurftum að bíða eftir því að læknir gæti komi til þess útskrifa hana og eitthvað svona. Það var einhvern veginn ekkert svoleiðis með hina. Ég fékk ljósmóður til þess að sitja hjá mér klukkutímum saman til þess að ræða við mig um brjóstagjöf þannig þjónustan var í rauninni miklu betri á aðfangadag af því ljósmæðurnar höfðu svo góðan tíma.“
„Það er ekkert sem toppar þessi jól og örugglega ekkert sem mun geta það bæði hjá okkur foreldrunum og ömmunum og öfunum og öllum,“ segir Guðrún María um þessi óvenjulegu jól. Í dag passa þau vel upp á að afmæli Dagbjartar Hönnu týnist ekki í öllum jólaæsingnum. Oft halda þau fjölskylduafmæli milli jóla og nýárs og vinaafmæli fyrir jól. „Foreldrum finnst það bara geggjað að fá að skila barninu af sér í nokkra tíma rétt fyrir jól og fá tvo tíma í friði til að versla og svona,“ segir Guðrún María og segir Dagbjörtu Hönnu jafnvel fá fleiri afmælisgjafir en aðrir. Alls staðar þar sem hún kemur yfir jólin fær hún afmælispakka, meira segja frá fólki sem er ekki boðið í afmæli til hennar.
Dagbjört er mikið jólabarn og segir móðir hennar að henni finnist eins og allir séu að halda upp á afmælið sitt á jólunum. „Hún byrjar að tala um hvernig hún ætlar að hafa afmælið sitt í september og hvenær hún getur byrjað að skreyta fyrir jólin og hvort það sé nú ekki að fara koma vetur. Þegar snjórinn kom í nóvember langaði hana að fara skreyta og rífa upp jólatréð,“ segir Guðrún María um litla jólabarnið sitt.