það þarf ekki að tæma budduna fyrir jólin til að gefa gjöf sem gleður. Stundum geta ódýrar vel valdar gjafir skipt miklu máli. Umfram allt er það hugurinn sem gildir. Hér má líta fallegar gjafir sem allar eiga það sameiginlegt að kosta undir 2.000 krónum.
Eddie-klukkan fæst í Rúmfatalagernum. Hún kostar 1.495 krónur.
Klassískur keramik-vasi úr Søstrene Grene í anda áttunda áratugarins. Kostar 1.588 krónur.
Behjartad ilmkertið í keramik-vasa kostar 895 krónur og fæst í Ikea.
Glerkúpull sem hægt er að nota til skrauts heima. Fæst í Ikea og kostar 1.690 krónur.
Le Cru Balsamic Raspberry er dásamleg gjöf sem kostar 1.490 krónur. Fæst í Bylola.is.
Gosh Boombastic Overdose maskarinn gefur mikla fyllingu og lyftir líka. Hann kostar 1.790 krónur á Heimkaup.is.
FTCo Jumper sippubandið kostar 1.995 krónur og fæst í Hreysti.