Helgi og Þorbjörg eiga jólalegasta hús Kópavogsbæjar

Múlalind 2 er jólalegasta hús Kópavogsbæjar.
Múlalind 2 er jólalegasta hús Kópavogsbæjar. Ljósmynd/Kópavogsbær

Múlalind 2 var valið jólahús Kópavogsbæjar árið 2022 af lista- og menningaráði Kópavogs. Þetta er í fyrsta sinn sem valið er jólahús í Kópavogi og var óskað eftir tilnefningum fyrr í mánuðinum.

„Það er virkilega gaman húsið okkar sé fyrsta jólahús bæjarins,“ segir Helgi Reimarsson húseigandi. Hann og kona hans Þorbjörg Guðnadóttir Blandon, hafa um árabil lagt metnað í að skreyta húsið sitt fallega.

„Við tökum þetta í skrefum, þetta eru ein til tvær helgar sem tekur að setja ljósin upp og við njótum við það liðsinnis eldri barnanna okkar. Svo kemur fjölskyldan öll saman í upphafi aðventu og fylgist með þegar við kveikjum á ljósunum, öllum í einu. Þetta er mikil jólastemning fyrir okkur öll og ekki síst barnabörnin,“ segir Helgi en jólaljósin á Múlalind 2 eru birtustýrð þannig að þau kvikna þegar fer að rökkva og eru kveikt þar til birtir á ný.

Ljósmynd/Kópavogsbær

Góðar undirtektir voru hjá íbúum Kópavogs við þeirri nýbreytni að óska eftir ábendingum um jólaleg hús og bárust fjöldi tilnefninga.

„Það var virkilega gaman að fara um bæinn og skoða hversu fallega hann er skreyttur og jólalegur. Kópavogur er mikill jólabær,“ segir Elísabet Sveinsdóttir formaður lista- og menningarráðs og ráðið þakkar fyrir frábærar viðtökur vegna tilnefninga á jólahúsinu.

Ljósmynd/Kópavogsbær
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál