c

Pistlar:

17. júlí 2012 kl. 15:22

Ágústa Johnson (ajoh.blog.is)

Poppkorn hollara en salatið þitt?

poppkorn.jpgPoppkorn hefur verið talsvert í fréttum s.l. mánuði í bandarískum fjölmiðlum.   Fyrirsagnir á borð við "Poppkorn er pakkað andoxunarefnum", "Poppkorn hollara en brokkólí?", "Poppkorn kann að vera hollara en sumir ávextir og grænmeti" og "Er poppkorn hin nýja súperfæða?" hafa birst á mörgum virtum vefsíðum s.l. mánuði. 

Meira af andoxunarefnum í poppi en í epli

Er kominn tími til að fylla skápana af poppmaís og hætta að spá í að borða nóg af grænmeti og ávöxtum?  Ekki alveg, en ef marka má nýja rannsókn Joe Vinson frá háskólanum í Pennsylvaniu, leynir poppkornið talsvert á sér hvað varðar hollustugildi.  Niðurstöður hans sýna að það inniheldur sambærilegt magn andoxunarefna og ávextir og grænmeti.

Efnasambandið polyphenols, sem talið er gagnast í baráttunni við krabbamein, finnst gjarnan í ávöxtum og grænmeti.  Vinson hefur nú fundið út að talsvert magn polyphenols er í poppkorni, meira en t.d. í eplum.  Skv. umræddri rannsókn inniheldur poppkorn, sem er poppað úr u.þ.b. 2 msk af poppmaís, um 500mg af polyphenol en talið er að meðal maður í Bandaríkjunum neyti um 1000 mg af polyphenol á dag, einna helst úr ávaxtasafa, rauðvíni, te, kaffi og súkkulaði. 
Poppkorn er auk þess 100% heilkorn og er því auðugt af trefjum.

Ekki staðgengill ávaxta og grænmetis

En vitaskuld kemur poppkorn ekki í stað ávaxta og grænmetis.  En þeir sem gjarnir eru á að maula óhollar og hitaeiningaríkar kartöfluflögur ættu að skipta yfir í poppið.  Vinson og hans fólk sem vann rannsóknina tekur sérstaklega fram að frekari rannsóknir þurfi til að komast að því hvernig líkaminn  nýti hollu efnasamböndin.  Mögulega ekki eins vel og úr ávöxtunum og grænmetinu þar sem þeir innihalda mikið vatn og auk þess inniheldur sú gæðafæða mikið af vítamínum og steinefnum sem nauðsynleg eru líkamanum og fást ekki úr poppkorni.

airpopcorn.jpgPoppaðu á holla mátann

En eins og með flest annað þá er ekki sama hvernig hráefnið er meðhöndlað.  Verksmiðjuframleitt örbylgjupopp sem er löðrandi í transfitusýrum og gerviefnum er ekki hollustufæða.  En poppað á gamla mátann t.d. úr lítilsháttar íslensku smjöri eða góðri olíu og með smá sjávarsalti er það tiltölulega hitaeiningasnautt, trefjaríkt og e.t.v. hin fullkomna nasl fæða.  Fyrir þá sem vilja poppið í sinni hitaeiningasnauðustu mynd og geta þá borðað nokkurn veginn að vild,  þá er málið að loft poppa í þar til gerðum loftpoppvélum.  Til að saltið tolli betur á loftpoppuðu poppi má úða lítilsháttar yfir það með olíuúða og strá svo saltinu strax yfir.  Fyrir þá ævintýragjörnu geta önnur krydd s.s. kanill, chilipipar og karrý verið góð tilbreyting. 

Hér má sjá myndband með góðum hugmyndum og leiðbeiningum um hvernig á að poppa fullkomið hollt poppkorn. Fleiri góð myndbönd má einnig finna á youtube.com með góðum hugmyndum um hvernig má poppa í örbylgjuofni í bréfpoka án olíu og með lítilsháttar olíu.