c

Pistlar:

11. desember 2011 kl. 7:22

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Hættuleg plastílát

plastbox.jpgBandaríski læknirinn Joseph Mercola hefur lengi varað fólk við hættunni á því að nota potta og pönnur sem eru húðuð þannig að ekkert festist við þau, svo og plastílát ýmis konar. Þar sem plastílátin eru létt, óbrjótanleg og margnota freistast margir til að nota þau í eldhúsinu. Vandamálið er hins vegar að í plastinu eru hættuleg efni sem geta haft alvarleg áhrif á heilsufar okkar. Mörg þeirra plastíláta sem mikið eru notuð í dag innihalda hættulega blöndu af aukaefnum og kemískum efnum þar á meðal:

Bisphenol A (BPA), sem nýlega var bannað í barnapelum hér á landi. Efnið hermir eftir kvenhormóninu estrógen og truflar innkirtlakerfi líkamans. BPA er eitt af þekktustu skaðlegu efnunum í plasti í dag. Í tilraun sem gerð var á 115 dýrum kom í ljós að 81% varð fyrir verulegum áhrifum frá lítilvægri snertingu við BPA.

Phthalates eru iðnaðarefni sem bætt er við plast, eins og til dæmis polyvinyl chloride (PVC), til að gera það mýkra og sterkara. Algengt er að finna þessi efni í matvælapakkningum. Phthalates eru talin hafa útbreidda truflun á innkirtlakerfið og áhrif þeirra á líkamann hafa verið tengd breytingum á þróun heilans í karlmönnum. Þau tengjast líka meltingartruflunum, göllum í kynfærum og minni testósterón hjá bæði börnum og fullorðnum.

PBDEs eru kemísk efni sem losa um hormóna í líkamanum og breyta kalkmerkjum heilans, en þau eru mikilvæg fyrir minni og lærdóm. PBDEs herma eftir skjaldkirtilshormónum og tengjast minni frjósemi manna.

Dr. Mercola bendir á að þessi kemísku efni haldist ekki á einhvern undraverðan hátt inni í plastinu, heldur leki þau úr í fæðu og drykki sem í þau eru sett. Magn efnanna fer eftir því hvernig þú notar ílátin. Ef settur er heitur matur í plastílát með BPA eða það hitnar sjálft, leka kemísku efnin út í matinn eða drykkinn 55 sinnum hraðan er ef í þeim væri kaldur matur. Gömul og illa farin plastílát leka líka kemískum efnum. Ef þau eru þvegin með sterkum þvottaefnum eða oft sett í uppþvottavélina eykst það magn kemískra efna sem úr þeim lekur.

Heimildir: http://www.drmercola.com/health-tips/bpa-and-pthalates-in-plastic-containers/

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira