c

Pistlar:

10. júlí 2016 kl. 21:36

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Geta bólgueyðandi lyf gert meiri skaða en gagn?

o_769_skilgreindarpillur.jpgÉg fylgist reglulega með skrifum bandaríska náttúrulæknisins Dr. Michael Murray. Í nýlegri grein á vefsíðu hans kom fram að FDA eða Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, sé nú að fara fram á að bólgueyðandi lyf eins og Íbúprófen og Voltaren (NSAID eða non-aspirin nonsteroidal anti-inflammatory drugs) verði merkt með viðvörun um að notkun á þeim geti leitt til hjartaáfalla og heilablóðfalls. Auk þessara tveggja alvarlegu aukaverkana er vitað að lyf í þessum flokki geta valdið aukaverkunum eins og:

  • Almennri iðraólgu (ristilkrampa og meltingartruflunum).
  • Höfuðverkjum og svima.
  • Alvarlegra aukaverkunum eins og magasári, auk þess sem þau eru talin hafa eyðileggjandi áhrif á þarmaveggina sem leiða til lekra þarma - og lekir þarmar leiða svo aftur til sjálfsónæmissjúkdóma.

NSAID lyfin, sem hér um ræðir eru meðal annars Ibuprofen (í USA selt sem Motrin og Advil), Aleve (naproxen sodium), Celebrex (celecoxib), Feldene (piroxicam) og Voltaren (diclofenac sodium), eru notuð í miklum mæli í Bandaríkjunum (og hér á land) til að meðhöndla liðbólgur, tíðakrampa, höfuðverki, kvef og flensueinkenni.

Í grein Dr. Michael Murray, kom fram að hvorki lyfjafyrirtækin né læknar sem lyfjunum ávísa, fjalli um hættulegar afleiðingar ofnotkunar eða langtímanotkunar á bólgueyðandi lyfjum. Einhverjar leiðbeiningar er auðvitað að finna í dvergaletri á límmiða sem settur er á glös eða í pakka, en því miður lesa þær fæstir.

SALAN Á ÍSLANDI SVIMANDI HÁ
Þegar ég las þetta lék mér forvitni á að vita hversu mikið af þessum lyfjum væri selt á Íslandi. Ég hafði samband við Lyfjaeftirlitið og þeir veittu mér góðfúslega upplýsingar um selt magn af bólugeyðandi lyfjum í þessum NSAID flokki árið 2015. Tölurnar eru að mínu mati svimandi háar, því þær miðast við skilgreinda dagskammta, þ.e. það magn sem fullorðinn ætti að taka á dag.

  • Árið 2015 voru seldir 9.320.154 skilgreindir dagskammtar af bólgueyðandi lyfjum og gigtarlyfjum, sem ekki eru steralyf.
  • AF Diclofenacum(Diclomex, Diklofenak Mylan, Klófen-L, Modifenac, Voltaren, Vóstar-S) voru seldir 1.566.348 skilgreindir dagskammtar.
  • Af Ibuprofenum (Alvofen Express, Ibuxin, Íbúfen, Nurofen) voru seldir 5.031.883 skilgreindir dagskammtar.
  • Af Naproxenum (Alpoxen, Naproxen Mylan, Naproxen-E Mylan) voru seldir voru 1.075.560 skilgreindir dagskammtar.
  • Af Celecoxibum (Celebra, Celecoxib LYFIS, Celecoxib Actavis, Cloxabix) voru seldir 774.910 skilgreindir dgskammtar.
  • Af Etoricoxibum (Arcoxia) voru seldir 436.268 skilgreindir dagskammtar.
  • Af Glucosaminum (Glucomed) voru seldir 249.216 skilgreindir dagskammtar.
  • Af öðrum tegundum á listanum voru seldir færri en 100.000 skilgreindir dagskammtar.

Svo ég vísi aftur í grein Dr. Murray, segir hann að þrátt fyrir mikla notkun sé að koma í ljós að þessi lyf geti í mesta lagi skilað skammtíma árangri, en jafnframt aukið á langtíma vandamál. Sem dæmi má rekja um 7.500 dauðsföll árlega í Bandaríkjunum beint til notkunar á lyfjum í þessum flokki (NSAID). Dr. Murray heldur því jafnframt fram að notkun á lyfjum í þessum flokki (NSAID) við t.d. liðbólgum flýti í raun fyrir eyðileggingu liðanna. Því sé ráðlegt að nota einungis lyf í þessum flokki (NSAID) í skamman tíma í einu.

Heimildir: Vefsíða Dr. Murray og Lyfjaeftirlitið

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira