c

Pistlar:

14. febrúar 2017 kl. 21:16

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Tilfinningaleg áföll og heilsan

Það eru ekki svo mörg ár síðan farið var það fjalla um það í ræðu og riti, hvaða áhrif tilfinningaleg áföll geta haft á heilsu okkar. Tilfinningaleg áföll hafa áhrif á orkulíkama okkar og birtast mjög oft sem veikindi eða alvarleg heilsufarsáföll í efnislíkamanum. Þeir sem verða fyrir skyndilegum áföllum, missa til dæmis oft málið, tímabundið eða til lengri tíma. Slík áföll geta meðal annars leitt til vandamála í skjaldkirtli eða erfiðleika með tjáningu síðar á ævinni, en um þetta og margt fleira ætlum við Matthildur Þorláksdóttir náttúrulæknir að fjalla á námskeiði sem við köllum HEILSA OG TILFINNINGAR og haldið er í byrjun mars.

YFIRBREIÐSLA Í STAÐ ÚRVINNSLU
Við notum oft mat, áfengi, eiturlyf eða reykingar til að breiða yfir eða kæfa tilfinningalegu áföllin okkar. Þegar við síðan tökum okkur á og breytum mataræðinu, hættum að drekka, dópa eða reykja, hafa þessar sömu tilfinningar tilhneigingu til að koma upp á yfirborðið. Verði líðanin yfirþyrmandi, sækjum við oft í sama farið á ný, hvort sem það er matur, sætindi eða einhver önnur efni til að deyfa okkur og flýja tilfinningarnar.

Svo skiljum við ekki af hverju við getum ekki staðið okkur betur, hvaða sjálfseyðingarhvöt liggi að baki því að við höfum ekki staðfestu til að hætta til dæmis að borða sælgæti. Oft er það vegna þess að við höfum ekki unnið úr áfallinu sem við á sínum tíma breiddum yfir með einhverju „sætu“, því það var svo „súrt“ að við gátum ekki afborið það.

Mikilvægt er að vinna úr svona tilfinningum svo líkaminn verði heill á ný og við lærum að meta  hann nægilega mikils til að við viljum honum aðeins það besta. Þegar unnið er úr tilfinningaáföllunum líður fólki oft eins og það hafi losnað undan þungu fargi, jafnvel fargi sem það var ekki meðvitað um að það væri að burðast með.

Ef þú hefur áhuga á að kynna þér á hvaða hátt náttúrulækningar líta á áhrif tilfinningalegra áfalla á líkamlega heilsu er námskeiðið HEILSA OG TILFINNINGAR fyrir þig.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira