c

Pistlar:

17. apríl 2018 kl. 17:11

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Sólbrúnt sumar með Astaxanthin

Það styttist í Sumardaginn fyrsta, hitastigið er farið að hækka og sólin að skína skærar. Þá er nauðsynlegt að undirbúa húðina vel svo hægt sé að verða sólbrúnn, án þess að skaða hana. Ég hef áður skrifað um Astaxanthin frá NOW og frábæra eiginleika þessa bætiefnis til að vernda húðina okkar fyrir skaðlegum geislum sólarinnar – en sjá jafnframt til þess að hún verði brún og flott þegar sólin skín á hana.

Astaxanthin býr yfir mörgum öðrum góðum eiginleikum og er því klárlega bætiefni sumarsins. Á þeim árstíma viljum við hafa mikla og góða orku til að njóta útivistar, sólar og þess dásamlega tima sem sumarið er með sínum löngu dögum og stuttu nóttum – og stuðning til þess fáum við frá þessu einstaka bætiefni.

LITAREFNI NÁTTÚRUNNAR

Astaxanthin er náttúrulegt karótínóíð sem finnst í þara, rækju, humri, kröbbum og laxi. Karótínóíðin eru litarefni sem myndast í náttúrunni og styrkja heilsu okkar. Í dýraríkinu finnst mest af karótínóíði í vöðvum laxa og vísindamenn geta sér til um að það veiti þessum stórkostlegum fiskum þann kraft sem þarf til að synda á móti straumnum upp ár og stórfljót.

Astaxanthin frá NOW er unnið úr Haematococcus örþörungum, sem framleiða astaxanthin til að vernda viðkvæma þörungana fyrir sterkum útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar og öðru álagi úr umhverfinu. Það er skylt beta-karótíni, lúteini og canthaxanthin, þótt einstök sameindauppbygging Astaxanthins geri það bæði öflugra og einstakara en önnur karótínóíð, meðal annars vegna þess að það verður aldrei að oxandi efni í líkamanum.

EYKUR MÝKT OG TEYGJANLEIKA HÚÐARINNAR

Rannsóknir sýna skýrt og greinilega að Astaxanthin verndar stærsta líffæri líkamans, sem er húðin. Það bætir rakastig hennar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum, blettum og freknum. Ef við sólbrennum myndast bólgur í húðinni, en Astaxanthin kemst inn í húðfrumurnar og dregur úr þeim skaða sem útfljóubláu geislarnir valda.

Astaxanthin verndar húðina sérstaklega gegn frumudauða sem orsakast af útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar. Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar Astaxanthin ekki UV geislana, þannig að það kemur ekki í veg fyrir að UVB geislarnir breytist í D–vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum.

ÖFLUG VIRKNI ASTAXANTHIN

Astaxanthin öflugt og breiðvirkt andoxunarefni sem veitir ekki bara vörn gegn geislum sólarinnar, því það stuðlar líka að heilbrigði augna, heila og hjarta. Að auki hefur það reynst vel gegn hvers konar krabbameinum, meltingarvandamálum, sykursýki, ýmsum meltingarsjúkdómum, lifrarsjúkdómum, ófrjósemi karla og nýrnabilun.

Það tekur Astaxanthin 12-19 klukkustundir að hámarkast í blóði þínu og eftir það brotnar það niður á 3-6 klukkustundum. Þess vegna þarf að taka það inn daglega. Best er að taka Astaxanthin inn með mat, sem í er einhver fita (t.d. ólífuolía) því það er fituuppleysanlegt bætiefni. 

VERNDAR LÍKAMANN GEGN BÓLGUM

Astaxanthin dregur úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er, allt frá liðvandamálum eins og liðagigt og hvers konar úlnliðsvandamálum eða tennisolnboga.

Astaxanthin virkar á í það minnsta fimm mismunandi bólguferla, svo það er öflugt þegar kemur að því að slá á bólgur í líkamanum og viðhalda jafnvægi í líkamskerfinu. Auk þess að vinna gegn bólgum dregur það um leið úr sársauka, því það blokkar virkni mismunandi efna í líkamanum, sem undir öðrum kringumstæðum fengju þig til að stynja af sársauka. Einnig dregur Astaxanthin úr bólgumyndandi efnum sem ýta undir marga króníska sjúkdóma. 

HÆGIR Á ÖLDUNARFERLINU

Flestir vilja lifa lengi, en samt hægja á öldrunarferli líkamans. Astaxanthin býr yfir þeim einstöku eiginleikum að geta varið bæði vatns- og fituuppleysanlega hluta frumunnar. Karótínóíðin skiptast yfirleitt í vatnsuppleysanlega eða fituuppleysanlega hópa, en Astaxanthin tilheyrir hópi sem er mitt á milli og getur haft áhrif á bæði vatn og fitu. Þetta þýðir að Astaxanthin sameindirnar geta haft áhrif á og þanið út himnu allra frumna og fljóta því ekki um í blóði okkar, heldur samlaga sig frumuhimnunni.

Þetta á líka við um hvatberana (mítókondruna eða orkudreifingarhlutann) í frumum hjartans, sem er ein ástæða þess að Astaxanthin er svo gott fyrir hjartað.

Þar sem ástand hvatberanna skiptir miklu máli þegar við eldumst, er stuðningur við hvatberana í frumukjarnanum (mítókondruna) eitt af því besta sem hægt er að gera til að hægja á öldrunarferlinu.

VELDUR EKKI OXUN

Mörg andoxunarefni valda oxun frekar en andoxun, þegar of mikið er til staðar af þeim, en einn af bestu eiginleikum Astaxanthin er að það veldur ekki oxun. Þótt mikið sé af því í líkamanum, er það bæði öruggara og öflugra andoxunarefni en mörg önnur.

Svo er það í sérflokki þegar kemur að andoxandi eiginleikum, vegna þess að Astaxanthin síast inn í allar frumur líkamans. Því má eiginlega segja að það veiti frumum líkamans heildarknús. Í rannsókn sem unnin var árið 2007 kom í ljós að Astaxanthin var 6000 sinnum öflugra en C-vítamín, 800 sinnum öflugra en Co-Q10 og 550 sinnum öflugra en grænt te og 75 sinnum öflugra en Alpha lipoic acid.

ASTAXANTHIN DREGUR ÚR SÍÞREYTU

Þeir sem þjást af síþreytu ættu að taka inn Astaxanthin. Það kemur góðu jafnvægi á orku likamans og veitir aukið úthald. Það virkar líka vel fyrir fólk sem er komið með útbrunaeinkenni vegna vinnu eða álags. Þar sem Astaxanthin stuðlar að skjótu jafnvægi í líkamanum eftir æfingar, er það einnig mjög gott fyrir íþróttamenn sem vilja ná sem bestum árangri í því sem þeir eru að gera.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

Heimildir: Grein eftir Suzy Cohen, R.Ph. á Huffington Post

Grein á vef Dr. Mercola

www.gudrunbergmann.is 

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira