c

Pistlar:

3. janúar 2020 kl. 14:10

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Árið sem draumarnir rætast

ÁRIÐ SEM DRAUMARNIR RÆTAST

Mér finnst upphaf að nýju ári alltaf svo spennandi. Yfirleitt eru 365 dagar framundan, en árið 2020 eru þeir 366 vegna hlaupaárs. Þessi aukadagur á örugglega eftir að koma sér vel hjá manneskju eins og mér sem er alltaf að óska eftir 36 tímum í sólarhringinn.

Ég fylgist reglulega með vefsíðunni www.numerologist.com og fæ fréttir af því hvað tölurnar þýða og hvaða orka fylgir þeim. Samtalan úr 2020 er 2+0+2+0= 4. Ef við höldum rétt á spilunum gæti flest það sem okkur hefur lengi dreymt um orðið að veruleika á þessu ári.

    

 

FÓKUS Á DRAUMANA

Til að draumar okkar geti ræst, megum við ekki alltaf verið að skipta um skoðun og henda út draumum, af því að þeir rætist ekki nógu fljótt. Við þurfum að hafa úthald til að vinna að öllu því sem þarf að gerast áður en draumurinn verður að veruleika.

Þess vegna eru markmið svo mikilvæg. Þá skrifum við niður allt það sem okkur dreymir um eða sem við viljum að verði að veruleika í lífi okkar. Minn markmiðalisti er yfirleitt nokkuð langur. Svo pikka ég út af honum FIMM mikilvægustu markmiðin, skrifa þau á blað í upphafi árs og pakka miðanum niður með jólaskrautinu. Í lok árs er listinn svo tekinn fram og skoðað hvort draumarnir (markmiðin) hafi ræst.

BREYTINGAR ERU EÐLILEGAR

Breytingar eru eðlilegur hluti af lífinu og mér finnst áramót vera frábær tími til að hefja breytingaferlið, þótt ég geri svo sem breytingar á öðrum tíma árs líka. Ég hef nefnilega lært að aðlögunarhæfni er góður eiginleiki.

Nýjasta breytingin er sú að nú styttist skráningartímabilið fyrir hvert HREINT MATARÆÐI námskeið niður í 10 daga. Undantekningin er þó námskeiðið sem byrjar 20. janúar, en skráning á það hófst í gær með 10% afslætti sem gildir í 4 daga eða til 6. janúar. Síðasti skráningardagur á námskeiðið er 14. janúar.

HEILSAN ER MIKILVÆG

Ég hvet þig til að huga vel að heilsu þinni þetta árið. Hún er það dýrmætasta sem þú átt. Það er nefnilega flókið að láta drauma sína rætast ef heilsan er ekki góð.

Settu þér því endilega markmið fyrir árið 2020, sem fela í sér umhyggju fyrir heilsunni. Hugsaðu aðeins fram í tímann, því heilsan eftir fimm, tíu eða fimmtán ár ræðst af því hvernig þú hugsar um hana í dag.

gudrunbergmann.is  

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira