Pistlar:

16. janúar 2018 kl. 13:45

Ásdís Ásgeirsdóttir (ljomandidisa.blog.is)

Frekjukast í flugtaki

Sumar auglýsingar vekja athygli, þótt þær hitti alls ekki í mark. Icelandair auglýsti nýlega „heimili þitt í háloftunum“ í krúttlegum sjónvarpsauglýsingum. En sannleikurinn er sá að ef það er einhver staður þar sem mér líður ekki neitt eins og ég sé í sófanum eða rúminu heima hjá mér, þá er það kramin í sæti í röri í háloftunum. Það er fátt þægilegt við flugsæti. Það er með ólíkindum að fólk yfir 1.70 á hæð geti yfirleitt ferðast með flugvélum. Ég er nú með meðalstuttar fætur en þær ná yfirleitt nánast í bakið á næsta sæti. Og ef maður er óheppin er sessunauturinn í yfirstærð og flæðir yfir á manns nokkurra sentimetra yfirráðasvæði. Eða það er grenjandi barn fyrir aftan mann. Olnbogar rekast saman við ókunnuga þegar maður sker kjúklinginn eða fiskinn (yfirleitt sér maður engan mun). Já, heimili þitt í háloftunum er sannarlega ekki það sem 99.9% af fólki hugsar þegar það sest í þröng sætin. Hin 0.01% geta breitt úr sér í einkaþotum. Því miður tilheyri ég ekki þeim hópi!
Öll eigum við sögur um hræðileg flug. Ég flaug einu sinni í tólf tíma frá Kenya til Íslands og öll klósett voru orðin stífluð, enginn matur var til í vélinni og vatnið búið. Tvisvar var millilent en ekki var hægt að ná í vistir, ó nei. Í annað sinn sat ég með eldri konu frá Kambódíu nánast í fanginu. Hún sat í sínu sæti en af einhverjum ástæðum sá hún sig knúna til að halla sér í áttina að mér, fara algjörlega inn á mitt „personal space“ og þar hékk hún bara. Ég þurfti að halla mér svo langt í hina áttina út á gangveginn að ég var í stórhættu á að verða fyrir þjónustuvagninum. Ekki skil ég af hverju hún gat ekki hallað sér í hina áttina, og legið utan í kallinum sínum! Hann var kannski svona leiðinlegur.
Svo var það skiptið sem sessunautur minn hóstaði grænni slímslummu yfir á matarbakkann minn, það var virkilega skemmtilegt! Eða þegar þá tveggja ára sonur minn tók frekjukast í flugtaki af því hann var festur við mig með belti og öskraði svo mikið að hann ældi yfir mig alla. Það var bara eftir millilending og annað flug þann daginn. Og ekki tekur maður með aukaföt í flug fyrir sig. En maður þarf að þola þetta allt búandi á eyju. Ég skal hætta í þessu frekjukasti....og þakka fyrir að geta flogið til útlanda annað slagið. Og svo hefur maður þá alltaf einhverjar góðar sögur, því svona ævintýri gerist bara í flugferðum!


4. janúar 2018 kl. 13:45

Fyrsta sjokk ársins

Nýja árið byrjaði hjá mér, sem og svo mörgum öðrum, með því að vekjaraklukkan hringdi og fyrsta hugsunin var; hvaða djöfulsins hávaði er þetta um miðjar nætur! En jú, það var víst kominn annar janúar og ekkert annað í stöðunni en að horfast í augu við blákaldan hversdagsleikann, drífa sig í sturtu og skola burtu stírurnar. Fögur fyrirheit fóru í gegnum hugann. Nú skal sko spýta í lófana. Mæta meira
24. janúar 2017 kl. 14:44

Iðrasinfónía í bíó

Í síðustu viku ákvað Þorbjörg að við ættum að lifa á fljótandi næstu daga, allt upp í sjö daga. Misjafnt var hvað fólk treysti sér í en ég ákvað að reyna við fimm daga. Skyldi detoxið byrja á laugardegi þar sem ég var að fara í afmælissaumaklúbb á föstudagskvöldinu. Mér fannst of hallærislegt að sitja þar með djús í flösku þegar boðið var upp á kvöldmat. Alla vega, saumaklúbburinn klikkaði ekki meira
20. janúar 2017 kl. 16:28

Miðlífskrísan nær hámarki

Miðlífskrísan mín er að ná hámarki þessa dagana. Enda líður senn að því að sá dagur rennur upp þar sem ég verð komin á sextugsaldurinn. Það ætti auðvitað að banna að kalla þetta sextugsaldur, en ég reyni að hugga mig við að „60 is the new 40“, þannig er þá ekki „50 the new 30“? Ég vona það. Ef ykkur finnst ég sjálfhverf í þessum pistlum þá er mér bara alveg meira
15. janúar 2017 kl. 11:04

Alveg ljómandi góð byrjun!

Ég byrjaði árið svipað og í fyrra, með því að taka fyrstu vikurnar sykur- og hveitilausar. Nú hef ég tekið verkefnið upp á næsta stig og er komin á námskeiðið Ljómandi 13 hjá Þorbjörgu Hafsteins og ætla að reyna að massa þetta. Leyfi ykkur að fylgjast með hér! Mætti galvösk og stundvíslega á fyrsta fyrirlestur á miðvikudaginn var og settist á fremsta bekk með penna og blokk í hendi. (Hef breyst í meira
Ásdís Ásgeirsdóttir

Ásdís Ásgeirsdóttir

Ég er blaðamaður og ljósmyndari og skrifa í Sunnudagsblað Morgunblaðsins. 

Meira