c

Pistlar:

31. desember 2013 kl. 0:22

Marta María Jónasdóttir (martamaria.blog.is)

Svona var 2013

2013 var dásamlegt tískuár með stórum glitrandi hálsmenum, neon-litum, tvílitu hári, ökklaskóm, bundnum ELLU-kjólum, rauðum varalit, augnháralengingum og Marc Jacobs-töskum.

 

Ég var pínulítið með Marc Jacobs á heilanum á árinu enda áttum við fund í Lundúnum í byrjun ársins. Ég iðaði af spenningi að hitta kauða og var mikið að væflast með í hverju ég ætti að vera. Eftir að hafa skoðað málið frá öllum sjónarhornum valdi ég öruggu leiðina og fór í svartan kjól með ermum og setti á mig neon-litað belti. Ég hefði líklega átt að pæla minna í þessu því hann mætti í röndóttum náttfötum...

Þótt ég hafi verið með Marc Jacobs á heilanum fór það í taugarnar á mér á árinu (og gerir reyndar enn) hvað töskurnar eru seldar dýru verði hérlendis.

Ég minntist á það í einum tískupistli að töskurnar fengjust í massavís í bandarískum „department“-verslunum og það væri hægt að fá þær fyrir slikk.

Á árinu var engin kona með konum nema að eiga stórt glitrandi hálsmen. Það voru náttúrlega bara auðkonur eins og Dorrit og konur Útrásarvíkinganna sem höfðu efni á að kaupa sér svoleiðis úr ekta gimsteinum. Við hinar létum spænska móðurskipið Zöru sjá um þetta fyrir okkur eða aðrar ódýrari verslanir. Ég lenti þó í smá veseni þegar ég var stimpluð sem „ódýr“ af gömlum séns. Sénsinn, sem hefur aðallega búið á meginlandi Evrópu og er með einstaklega fágaðan fatastíl, tók strax eftir því að hálsmenið væri ekki ekta og fannst ég pínulítið taka niður fyrir mig með því að bera það. Hann hafði sérstaklega orð á því að hálsmenið færi alls ekki vel við skyrtuna, buxurnar og hælaskóna. Af því að maðurinn er með nánast löggildan smekk gaf ég hálsmenið á árinu sem er að líða...

Kjóll ársins er án efa bundinn kjóll frá ELLU – hann er svona eins og Chanel-útgáfan af Hagkaupssloppnum. Vinsældir kjólsins eru án efa ekki bara hvað hann er klæðilegur heldur hvað konan er snögg að skutla sér úr honum... Á vissum augnablikum getur það verið kostur.

Nú svo var það rauði varaliturinn sem sló öll heimsmet í smekklegheitum. Á tímabili voru allar píur bæjarins (og ömmur þeirra) komnar með rauðar varir. Þessi tískustraumur er ekki á útleið og mæli ég með því að sem flestar fari inn í nýja árið með eldrauðar varir. Þær sem setja á sig rauðan varalit þora. Og hvað er meira sjarmerandi en kjarkur og þor. Á nýja árinu ættir þú ekki að þurfa mikið meira ef þú hefur þetta tvennt...eða svona þangað til það kemur útsala!