c

Pistlar:

27. maí 2014 kl. 21:43

Marta María Jónasdóttir (martamaria.blog.is)

Það er ekki hægt að búa til kemestrí

Ég er búin að taka 12. september frá og þann 11. september verð ég hlekkjuð við Kitchen Aid-hrærivélina því ég er búin að lofa upp í ermina á mér. Ég er að fara að baka brúðartertu enda ekki á hverjum degi sem elsku George Clooney okkar gengur í það heilaga.

 

Við Kolbrún Bergþórsdóttir, samstarfskona mín, höfum fylgst náið með ástarlífi stórleikarans síðustu ár. Þótt hann hafi verið á töluverðum lausagangi og með skuldbindingarfælnina í botni er samt ekki annað hægt en að halda með honum. Ég meina – maður með þetta útlit fær einhvern veginn endalausa sénsa. Svona maður á alltaf inneign – sama hvað.

Þegar horft er yfir kærustuhóp Clooneys er ákveðið útlit sem heillar leikarann. Ef það er eitthvað sem hann á erfitt með að standast þá eru það forkunnarfagrar, hávaxnar, dökkhærðar sleggjur. Vandamálið er að hann hefur yfirleitt ekki tollað með þeim degi lengur en tvö ár. Þá hefur kemestríið verið farið að dala og hann gefist upp. Tala nú ekki um þegar kærusturnar hafa ýtt á hann að ganga í hjónaband. Þá hefur hann reimað á sig hlaupaskóna og hlaupið hratt á brott (svona eins og margir menn gera).

Sem er svo sem alveg skiljanlegt. Það er ekkert til meira ósjarmerandi en of „needy“ píur. Það er varla hægt að eiga þannig vinkonur – hvað þá að búa með þeim. Svo má ekki gleyma því að maður með þetta útlit verður náttúrlega að leyfa fleiri en einni að njóta – annað væri hreinræktuð sóun.

Maður eins og hann er líka meðvitaður um kemestrí. Kemestrí er eitt það verðmætasta sem til er því það er ekki hægt að búa til – hvorki með peningum né völdum. Ef það væri hægt að búa til kemestrí myndi fólk líklega búa það til með hverjum sem er – því það er eitthvað svo notalegt að laðast að annarri manneskju. Þegar fólk er á valdi kemestrísins skiptir ekkert annað máli í heiminum og það er ekki rými fyrir neitt nema þá sem eru í klístraðir saman í kemestríinu.

Með tímanum eyðist kemestríið upp (því miður), jafnvel þótt fólk reyni að halda öðru fram. Ef þið heyrið fólk einhvern tímann segja að ástin breytist með aldrinum þá er það raunverulega að meina – kemestríið hverfur og fólk reynir að gera gott úr öllu saman... Eða eitthvað í þá áttina.

Það að lögfræðingurinn Amal Alamuddin hafi náð að gera Clooney svo rangeygðan af hrifningu að hann sé búinn að taka 12. september frá er því eiginlega stórfrétt. Hann hefur bara einu sinni á ævinni gengið í hjónaband en það var með hinni undurfögru Taliu Balsam. Clooney og Balsam voru saman á árunum 1984-1987. Svo kom babb í bátinn og þau hættu saman en kemestríið var svo tryllt að þau byrjuðu aftur saman og giftu sig í Las Vegas 1989. Hjónabandið entist þó ekki nema í smá tíma.

Fyrir utan kökubaksturinn er í mörg horn að líta. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að við Bergþórsdóttir látum sérsauma á okkur sérstaka kjóla til að klæðast í brúðkaupinu. Rautt kemur sterklega til greina enda klæðir sá litur okkur báðar og svo er rauður líka litur ástarinnar. Við erum ekkert að velta fyrir okkur fatnaði Clooneys og Alamuddin – þau hljóta að spjara sig.