c

Pistlar:

16. júlí 2018 kl. 23:01

Sigurður Már Jónsson (sigurdurmar.blog.is)

Merkilegt framtak hjá Kópavogsbæ

Það er ánægjulegt að fylgjast með notk­un Kópa­vogs­bæj­ar á Vísi­tölu fé­lags­legra fram­fara (VFF) en það felur í sér nýja nálg­un hjá bænum við að mæla ár­ang­ur þar sem ekki er unnið út frá efna­hags­leg­um for­send­um held­ur fé­lags­leg­um þátt­um. Kópavogur er fyrsta sveitarfélagið til að ráðast í þetta og er ekki að efa að fleiri sveitarfélög fylgjast með tilraun þeirra.kopa

Í verkefninu eru tekn­ir út þætt­ir sem bærinn vill mæla og varða líðan íbúa. Mæl­ing­ar VFF hjálpa til við að fylgj­ast með því hvernig til tekst að ná heims­mark­miðum Sam­einuðu þjóðanna sem nýlega var fjallað um hér. Mæli­kv­arðinn hef­ur verið notaður af ein­staka þjóðum en aldrei af sveit­ar­fé­lagi af þessari stærð og er því sannarlega um frum­kvöðlastarf að ræða. Ármann Kr. Ólafs­son, bæj­ar­stjóri í Kópa­vogi, er nú stadd­ur í New York til að kynna framtakið á hliðarviðburði í tengsl­um við ráðstefnu Sam­einuðu þjóðanna, High Level Political For­um (HLPF) eins og kom fram í Morgunblaðinu í morgun.

Í pistlum hér hefur margoft verið rætt um Social Progress mælikvarðana sem byggjast á einstaklega áhugaverðri nálgun til að mæla félagslegar framfarir en áreiðanlegir mælikvarðar er helst það sem skortir við slíkan samanburð. Þessir mælikvarðar eru enn á þróunarstigi en lofa góðu. Ísland hefur gert sitt til að kynna Social Progress mælikvarðann enda kemur íslenskt samfélag undantekningalaust vel út þar.

Á að skila sér í betri þjónustu

„Notk­un vísi­töl­unn­ar á að skila sér í að þjón­ust­an við íbú­ana verði betri, verk­efn­in mark­viss­ari og þar með fjár­hags­áætlana­gerðin. Vísi­tal­an er ný­leg aðferð til þess að mæla styrk­leika sam­fé­lags­legra innviða Kópa­vogs,“ seg­ir Ármann í viðtali við Morgunblaðið. Þess má geta að það hefur náðst þver­póli­tísku sátt í bæj­ar­stjórn Kópa­vogs í kring­um verk­efnið sem hefur þegar hlotið ýmsar viðurkenningar.

Kópavogs­bær hefur látið smíða sér­stak­an hug­búnað sem byggi á þátt­um vísi­töl­unn­ar og miklu magni af gögn­um um fjöl­breytt­an rekst­ur bæj­ar­ins. Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að nálg­un Kópavogs hefur vakið at­hygli Social Progress Im­perati­ve-stofn­un­ar­inn­ar sem tek­ur sam­an mæli­kv­arðann sem notaður er í VFF.

„Vinn­an við und­ir­bún­ing notk­un­ar á vísi­töl­unni hófst 2017 og fyrsta skor­kortið var birt í vor. Niður­stöður mæl­ing­anna not­um við í frammistöðumati á fram­kvæmd­ir og til að styrkja stýr­ingu og skil­virkni op­in­berr­ar fjár­fest­ing­ar,“ seg­ir Ármann og bæt­ir við að afrakst­ur­inn skili sér í auk­inni vel­ferð íbúa og betri nýt­ingu á skatt­fé íbú­anna.

Kópa­vogs­bær frum­sýn­di í dag mynd­band á fés­bók­arsíðu sinni um nálg­un Kópa­vogs­bæj­ar á notk­un vísi­tölu fé­lags­legra fram­fara.