c

Pistlar:

4. maí 2011 kl. 21:38

Valentína Björnsdóttir (valentina.blog.is)

Það er eitthvað notalegt við möndlur.

img_9906_1081987.jpg

Einn lítill möndlupoki lætur ekki mikið yfir sér, þar sem hann kúrir bakvið haframjölið í eldhússkápnum.Ég veit ekki hvaða ár möndlurnar komu til landsins, en þær virðast hafa fylgt okkur alla tíð.

Ég efa að langömmur okkar hafi vitað að þær væru að mylja ofurfæði framtíðarinnar yfir gyðingakökurnar hérna forðum.

Möndlurnar koma víða við sögu í matargerðinni eins og t.d möndlusteiktur silungur,hin spænskættaða romescosósa, hunangsristaðar sem snakk, möndlugrautur á jólum, óteljandi möndluköku uppskriftir, og sem hið eðalborna marzipan svo eitthvað sé nefnt.

Í seinni tíð hafa möndlurnar skotist upp á stjörnuhimininn og eru eitt heitasta selebið í búrskápnum í dag. Þær teljast til ofurfæðis en það eru fæðutegundir sem innihalda sérstaklega mikið af góðum næringarefnum.

Með einum litlum möndlupoka má töfra fram spennandi kræsingar eins og t.d möndlupestóið góða sem er svo vinsælt á Krúsku.

Uppskriftin er ofureinföld

100 gr. Möndlur með hýði bakaðar í ofni í ca 15 min við 150°

4 stk. sólþurrkaðir tómatar

1,5 dl Ólífuolía

30 Basilblöð

2 msk rifin parmesanostur

2 msk sítrónusafi

1 hvítlauksrif

Salt og svartur pipar eftir smekk.Allt sett í matvinnsluvél og maukað vel saman.

Þessa dagana elska ég að fá mér nýbakað speltibrauð með pestóinu góða, grænt salat þar ofan á og toppa svo með rauðrófusalati.Fallegt og gott! Tek jafnvel mynd af sneiðinni til að fleiri fái að njóta.

Valentína Björnsdóttir

Valentína Björnsdóttir

Áhugamanneskja um lífsins lystisemdir og heilsusamlegt líferni. Framkvæmdarstjóri Móður Náttúru sem framleiðir grænmetisfæði fyrir stóreldhús og á neytendamarkað.

Meira