Arna Bára Karlsdóttir, hárgreiðslukona og Playboy-fyrirsæta, opnaði hárgreiðslustofuna Fönix í Smáralind í gær. Í samtali við mig í gær sagði hún að þarna væri gamall draumur að rætast og hafi hún verið búin að teikna upp fyrirtækið þegar hún var 11 ára.
Það var því vel við hæfi að opna hárgreiðslustofuna á 26 ára afmælisdaginn. Eins og sést á myndunum var þetta vel heppnað partí hjá Örnu Báru.
HÉR má lesa viðtalið við Örnu Báru í heild sinni en þar kemur fram að hún vilji bara vinna fyrir Playboy því þar sé ekki ætlast til þess að hún deili rúmi með umboðsmanni sínum.