Dönsuðu fyrir Birnu

mbl.is/Kristinn Magnússon

Hin árlega dansbylting fór fram í Hörpu í dag í boði UN Women á Íslandi og Sónar Reykjavík. Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim og í dag var minning Birnu Brjánsdóttur heiðruð. 

Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi.

„Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur, sem síðar fannst látin, hafa konur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsamband, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Þessi veruleiki er þó ekki aðeins bundinn við Reykjavík. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim. Ofbeldið á sér stað hvenær sem er dagsins, á heimilum, á úti á götum, í almenningssamgöngum, á vinnustöðum og í kringum skóla svo dæmi séu nefnd.

UN Women vinnur að því að gera borgir öruggari fyrir konur og stúlkur víða um heim. Einföld leið til þess að draga úr ofbeldi er að lýsa upp dimmar götur. Í Nýju Delí hefur ljósastaurum verið komið í borginni, m.a. við strætó biðskýli og á almenningssalernum. í Mexíkóborg hafa sérstakir kvennastrætóar verið settir á laggirnar sem gera konum kleift að ferðast til og frá vinnu óáreittar. UN Women vinnur í samstarfi við borgaryfirvöld víða um heim að einföldum og ódýrum aðgerðum sem miða að því að uppræta og draga úr ofbeldi gegn konum og stúlkum á almenningssvæðum. UN Women hvetur alla til að taka þátt í að gera borgir öruggari fyrir konur og stelpur með því að senda sms-ið Konur í 1900 (1000 kr.),“ segir í tilkynningu frá Un Women. 

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál